FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 2
Útg: Félag löggiltra endurskoðenda ©
Aðsendar greinar í blaðinu eru á ábyrgð höfunda en að öðru leyti er útgáfa blaðsins á ábyrgð
ritnefndar FLE. FLE blaðið má ekki afrita með neinum hætti, að hluta til eða í heild,
þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfundarrétthafa.
Vinnsla blaðsins
ritneFnd Fle:
Arnar Már Jóhannesson, formaður
Ingvi Björn Bergmann
Benóní Torfi Eggertsson
Prentun: GuðjónÓ
Umsjón: Hrafnhildur Hreinsdóttir
Janúar 2018, 40. árgangur 1. tölublað
skriFstoFa Fle, helstu upplýsingar
Skrifstofa FLE, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, er opin virka daga kl. 9-15
Sími: 568 8118, Tölvupóstfang: fle@fle.is, Vefsíða FLE: www.fle.is
Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri sigurdur@fle.is
Hrafnhildur Hreinsdóttir, skrifstofustjóri fle@fle.is
Félag löggiltra endurskoðenda sendir nú frá sér 40.
tölublaðið, en blaðið hefur verið gefið út árlega frá
árinu 1978. Blaðið er gefið út á bæði prentuðu og raf-
rænu formi, en blaðið er sent á prentuðu formi til allra
félagsmanna auk þess sem því er dreift til ýmissa
stofnanna og fyrirtækja. Í blaðinu er almennt fjallað
um málefni líðandi stundar er varða skatta, endur-
skoðun og reikningshald. Þá er reynt að skyggnast
inn í heim endurskoðandans á léttum nótum hvort
sem um er að ræða innan eða utan skrifstofunnar.
Starfsemi félagsins á árinu fær svo almennt sitt pláss
en henni er gerð góð skil bæði í máli og myndum.
Margt áhugavert er í blaðinu að þessu sinni. Fjallað
er um erfðafjárskatt og önnur erfðatengd málefni en
ýmsar flækjur geta komið upp í þeim efnum. Grein
um reikningshald er á sínum stað að venju en í henni
er fjallað um flækjur og rembihnúta á bundnu eigin
fé. Mikið hefur verið fjallað um heimagistingu á síð-
ustu misserum, en í grein sinni tekur Ágústa Katrín
Guðmundsdóttir saman upplýsingar um þau atriði
sem þarf að hafa í huga við útleigu á húsnæði til
ferðamanna. Ný persónuverndarlöggjöf mun brátt
taka gildi en fjallað er um hana út frá starfi endur-
skoðandans. Þá líta fjórir félagar úr stéttinni yfir farinn
veg en margt hefur breyst frá því að þeir hófu störf á
endurskoðunarskrifstofu fyrir um 40 árum.
Hér að framan höfum við talið upp lítið brot af því
áhugaverða efni sem við ætlum að bjóða upp á að
þessu sinni. Við í ritnefndinni þökkum greinahöfund-
um fyrir góðar greinar og vonum að sem flestir eigi
eftir að hafa gagn og gaman af lestri blaðsins.
Janúar 2018,
Arnar Már Jóhannesson, Ingvi Björn Bergmann
og Benóní Torfi Eggertsson.
Fylgt Úr hlaði