FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 36
36 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
á ári, eða ef sýslumaður fellir niður heimagistingarskráningu,
teljast allar leigutekjur viðkomandi árs vera atvinnurekstrar-
tekjur. Ef tveir menn eða fleiri eiga saman eign skal gagnvart
fjárhæðarmarkinu hjá hverjum og einum horft til heildarleigu-
tekna af eigninni. Ef t.d. tveir menn eiga saman eign í útleigu
og heildarleigutekjurnar eru 2.500.000 kr. þá skulu þær skatt-
lagðar sem atvinnurekstrartekjur enda þótt leigutekjur hvors
eiganda fyrir sig séu undir 2 milljónum.
Ef ofangreind skilyrði um heimagistingu eru uppfyllt eru tekj-
urnar skattlagðar sem fjármagnstekjur án frádráttar. Einhvers
misskilnings hefur gætt um að þessar tekjur séu undanþegnar
skatti ef þær eru undir tveggja milljóna viðmiðið og þeim
reglum sem settar hafa verið um heimagistingu, en svo er ekki.
Teljist heimagisting vera atvinnustarfsemi, skattleggst hún
með sama hætti og önnur atvinnustarfsemi manna. Þá er
heimilt að draga kostnað við öflun, tryggingar og viðhaldi tekn-
anna til frádráttar. Hagnaður skattleggst í þrepaskiptum tekju-
skatti og um útsvar að auki.
Það er mikilvægt að þeir sem eru með heimagistingu haldi vel
utanum allan kostnað vegna starseminnar ef vera kynni að hún
fari yfir þau mörk sem eru sett um heimagistingu og einnig ef
sýslumaður fellir niður skráningu sökum vankanta, því þá telst
starfssemin vera atvinnustarfsemi.
Virðisaukaskattur
Gistiþjónusta fellur undir skattskyldusvið virðisaukaskatts, þ.e.
er í eðli sínu virðisaukaskattsskyld þar sem leigan er til
skemmri tíma en eins mánaðar. Skatthlutfall gistiþjónustu er
11%.
Hafi einstaklingur sem selur heimagistingu ekki aðra starfsemi
með höndum, sem fellur undir skattskyldusvið virðisauka-
skatts, þá er verður hann undanþeginn því að innheimta og
skila virðisaukaskatti, á þeim grundvelli að ársvelta hans er
undir 2.000.000 kr..
Hafi einstaklingur hins vegar aðra starfsemi með höndum, sem
fellur undir skattskyldusviðið, ber að horfa til samanlagðrar
veltu þeirrar starfsemi og heimagistingarinnar. Ef samanlögð
ársvelta er yfir 2.000.000 kr. ber einstaklingnum að innheimta
virðisaukaskatt í báðum þáttum starfsemi sinnar.
gistináttaskattur
Samkvæmt lögum um gistináttaskatt, skal ekki leggja gistinátt-
askatt á sölu gistingar sem ekki ber virðisaukaskatt.
Fasteignaskattur
Með 5. mgr. 10. gr. laga nr. 67/2016 var við lög nr. 85/2007
aukið ákvæði um að heimagisting, sem uppfyllir skilyrði þeirra
laga, teljist ekki fara fram í atvinnuhúsnæði í skilningi laga nr.
4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. Ákvæðið var sett að til-
lögu atvinnuveganefndar Alþingis.
Ákvæðinu virðist, að því er húsnæði til heimagistingar varðar,
ætlað að víkja til hliðar ákvæðum 3. gr. laga nr. 4/1995, sem
kveða á um álagningu fasteignaskatts. Samkvæmt ákvæðum
þeirrar greinar getur fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði og
sumarbústöðum hæstur verið 0,5% af fasteignamati.
Fasteignaskattur af mannvirkjum sem nýtt eru fyrir ferðaþjón-
ustu getur hins vegar hæstur verið 1,32% af fasteignamats-
verði. Hugtakið atvinnuhúsnæði er ekki viðhaft í ákvæði 3. gr.
Það orkar tvímælis hvort þessi breytingu á lögum um veitinga-
staði, gististaði og skemmtanahald er til þess fallin að breyta
efnislega ákvæðum í lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
Ágústa Katrín Guðmundsdóttir