FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 7
7FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
unarsambandinu NRF. Félög endurskoðenda á öllum Norður-
löndunum fimm taka þátt í samstarfinu. Það kom mér á óvart
hve sterka rödd við Íslendingar höfum með þátttöku okkar í
sambandinu með frændþjóðunum. Í alþjóðlegu starfi koma
norrænu þjóðirnar fram sem ein heild og hafa þannig meiri áhrif
en ella væri. Á vettvangi NRF eru mörg spennandi verkefni
framundan sem verður gaman að taka þátt í.
Það er samt ýmislegt sem er mér hugleikið, eins og áhrif
þess að skylduaðild verði afnumin eins og nú er gert ráð fyrir
í drögum að nýjum lögum um endurskoðendur. Það er eflaust
mesta áskorunin framundan hvernig hægt verður að útvíkka
starfsemina hjá þessu gamla rótgróna en samt síunga félagi,
fari svo að félagsmönnum fækki. Þá vil ég efla tengsl félagsins
við háskólana og aðkomu félagsins að grunnnámi fyrir endur-
skoðendur. Endurskoðun er menntun sem nýtist hvar sem er
í viðskiptalífinu og er almennt mikils metin og því þurfum við
að koma betur á framfæri til að laða fleiri að. Þá stöndum við
endurskoðendur frammi fyrir miklum áskorunum með hröðum
tæknibreytingum og sífellt auknum kröfum viðskiptavina okkar
um samtíma staðfestingar, sem verður sífellt stærri þáttur í
starfi okkar. Síðast en ekki síst er það svo fyrirhuguð ferð okkar
endurskoðenda í haust til Brussel, sem mun verða heilmikil og
skemmtileg vinna að undirbúa.
Það er von mín að félagið haldi áfram að dafna og styrkjast
með nýju og öflugu fólki og sífelldri endurnýjun.
Viðtal, Hrafnhildur Hreinsdóttir
Frá aðalfundi 2017, Ágúst, Margrét og Sigurður
Ágúst þungt hugsi á haustráðstefnu
Ágúst að stýra fyrsta stjórnarfundi sem formaður