FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 19

FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 19
19FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 skattskil Við andlát manns lýkur skattskyldu einstaklings og til verður dánarbú sem tekur við öllum eignum og skuldum hins látna. Skattskyldu dánarbús lýkur við skiptalok hjá sýslumanni. Dánarbú er lögaðili og ber sjálfstæða skattskyldu og fer álagning á dánarbú eftir álagningarreglum sem gilda um lögaðila, m.a. hvað skattprósentu varðar. Skatthlutfall dánarbúa er 36%. Það á við um allar tekjur dánarbús sem hafa orðið til eftir andlát en fyrir lok búskipta, þ.á m. vaxtatekjur af bankainnstæðum, inn- lausnarvexti af verðbréfum og söluhagnað af hlutabréfum og öðrum eignum, en þó með þeirri undantekningu að fenginn arður er skattlagður sem fjármagnstekjur (20% skattur). Á andlátsári ber að skila hefðbundnu einstaklingsframtali, RSK 1.01. Álagning miðast við álagningu einstaklinga fram að dánar- dægri en álagningu dánarbúa eftir dánardægur. Á öðru ári eftir andlát og síðar ber að skila skattframtali dánarbús, RSK 1.03. Heimilt er að draga frá tekjum dánarbúsins kostnað vegna eigna dánarbúsins, s.s. vaxtagjöld, hússjóð og fasteigna- gjöld. Ekki er heimilt að draga frá tekjum dánarbúsins kostnað við gerð skattframtals dánarbúsins eða gerð erfðafjárskýrslu. Erfingjar telja fram til skatts fyrir bú sem er undir einkaskiptum. Skiptastjórar telja fram fyrir dánarbú í opinberum skiptum. Halla Björg Evans og Guðrún Björg Bragadóttir Úr FélagslÍFinu Frá Skattadegi. Þéttsetinn salurFrá Skattadegi í janúar 2017 Morgunkorn um áhættustjórnunMorgunkorn um 4. iðnbyltinguna

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.