FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 17

FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 17
17FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 Að sama skapi geta hjón tilgreint það sérstaklega ef þau vilja að dánarbú skammlífari maka verði tekið til skipta og að ekki verði hægt að fá leyfi til að sitja í óskiptu búi sbr. 1. mgr. 7. gr. erfða- laga. erFðaskrá Allir einstaklingar 18 ára og eldri geta gert erfðaskrá en hún þarf að vera skrifleg og uppfylla ákveðin skilyrði varðandi þær upp- lýsingar sem þar þurfa að koma fram sbr. VI. kafla erfðalaga. Erfðaskrá þarf að votta, annað hvort af tveimur vottum 18 ára eða eldri, eða af lögbókanda (sýslumanni). Við höfum almennt mælt með því við okkar viðskiptavini, að þeir fái lögbókanda til að votta erfðaskrá og geyma eintak af erfðaskránni hjá viðkomandi sýslumannsembætti, en ólíkt kaupmálum þá birtast hvergi opin- berlega upplýsingar um erfðaskrár. Þannig er hægt að tryggja að farið sé að vilja hins látna. Algengustu ákvæði í erfðaskrá eru framangreind heimildarákvæði um setu langlífari maka í óskiptu búi sem og ákvæði um ráðstöf- un eigna með erfðaskrá. Einnig er nokkuð algengt að í erfðaskrá sé ákvæði þess efnis, að arfur sé séreign erfingja. Fólk getur sett í erfðaskrá sína ákvæði um að arfur verði séreign erfingja í samræmi við 1. mgr. 77. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og þá einnig að andvirði það er kemur í stað arfshluta, sem háður er framanrituðu skilyrði, skuli verða séreign, svo og tekjur af sér- eigninni. Þetta er í raun heimildarákvæði og virkar að vissu leyti eins og ákvæði um séreignir í kaupmála. skipti dánarbÚa Hægt er að ljúka skiptum á dánarbúum (1) með því að eftirlifandi maki fær leyfi til setu í óskiptu búi sbr. 27. gr. skiptalaga, (2) með því að erfingjar lýsi yfir að dánarbúið sé eignalaust (að andvirði eigna dánarbús nemi ekki meira en kostnaði við útför hins látna) í samræmi við 25. gr. skiptalaga, (3) með því að sýslumaður ljúki skiptum á dánarbúi ef hann fær ekki svör um hagi búsins sbr. 26. gr. skiptalaga, (4) með einkaskiptum sbr. 28. gr. skiptalaga eða (5) með opinberum skiptum sbr. IV. kafla skiptalaga. Einkaskipti á dánarbúum er algengasta aðferðin sem farin er við að ljúka skiptum á dánarbúi. Hafa verður þó í huga að allir erfingjar verða að vera sammála um að skipta dánarbúinu með einkaskiptum, enda bera þeir allir saman ábyrgð, einn fyrir alla og allir fyrir einn (in solidum ábyrgð). Því er mikilvægt áður en erfingjar óska eftir leyfi til einkaskipta, að þeir geri sér grein fyrir skuldum og ábyrgðum dánarbúsins, því eftir að leyfi til einka- skipta er veitt þá bera erfingjar alla ábyrgð á skuldum hins látna, jafnt þeim skuldum sem þeim er kunnugt um sem og skuldum sem þeim er ókunnugt um. Þó skal benda á þann rétt erfingja að þeir geta krafist opinberra skipta á dánarbúinu þótt þeir hafi áður fengið leyfi til einkaskipta sbr. 1. mgr. 38. gr. skiptalaga. Við einkaskipti er vert að athuga ábyrgðir hins látna, t.d. vegna lána frá LÍN en ábyrgðin fellur ekki niður við lát ábyrgðarmannsins heldur taka erfingjar við ábyrgðinni nema skuldarinn útvegi nýjan ábyrgðarmann eða t.d. veð í húsinu sínu. Sama á auðvitað við um aðrar skuldir sem ekki er veð fyrir eða veð ekki nægilegt, sem og t.d. skattaskuldir. Ef vafi leikur á hvort eignir dugi fyrir skuldum hins látna eða þegar miklar líkur eru á því að hinn látni skuldi eitthvað sem ekki hefur fengist staðfest eða er vitað um, eða jafnvel hvíli ábyrgðir á dánarbúinu sem erfingjar treysta sér ekki að taka við, þá er hægt að velja þá leið að óska eftir opinberum skiptum á dánarbúi. Ef erfingjar eru ekki sammála um að sækja um leyfi til einkaskipta þá þurfa að fara fram opinber skipti á dánarbúinu. Beina þarf kröfu um opinber skipti til héraðsdóms og geta slíkar kröfur verið lagðar fram af (1) sýslumanni skv. 37. gr. skiptalaga, (2) erfingjum skv. 38. gr. skiptalaga, (3) beiðni í erfðaskrá skv. 39. gr. skiptalaga eða (4) kröfuhafa skv. 40. gr. skiptalaga. Leyfi til opinberra skipta er ekki veitt nema fullvíst sé að eignir dánarbúsins dugi fyrir skiptakostnaði eða sá sem krefst skiptanna setji tryggingu fyrir kostnaðinum. Að mörgu leyti er skiptaferlið líkt og við einkaskipti en kostnaður er þó yfirleitt meiri. Við opin- ber skipti er skiptastjóri skipaður til að framkvæma skiptin og er kostnaður af störfum hans greiddur af eignum dánarbúsins eða tryggingu þess sem krafðist skipta. Til að lesendur geti betur glöggvað sig á hver arfshluti hvers erf- ingja verður við skipti á ímynduðu dánarbúi ætlum við að leiða út arfshluta erfingja Jóns og Gunnu sem eru gift og eiga eitt barn saman. Jón á auk þess tvö börn frá fyrra sambandi og Gunna eitt barn. Alls eiga Jón og Gunna því fjögur börn. Hrein eign búsins er 100.000.000 kr. Nú gerist það að Jón fellur frá og þá þarf fyrst að skoða hvort Gunna megi sitja í óskiptu búi. Gunna þarf að fá samþykki stjúp- barna sinna til að fá að sitja í óskiptu búi nema Jón og Gunna hafi gert erfðaskrá þar sem langlífari maka er heimilað að sitja í óskiptu búi. Gunna má alltaf skipta dánarbúinu þrátt fyrir ákvæði erfðaskrár um heimild til setu í óskiptu búi. Hún getur líka byrjað á að sitja í óskiptu búi og skipt búinu síðar, að hluta eða öllu leyti. Ef við gefum okkur að Gunna ákveði að skipta búinu, þá yrði arfs- hlutur Gunnu og barnanna sem hér segir:

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.