FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 21
21FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
óFjárhagsleg upplýsingagjöF
Í 66 gr. laga um ársreikninga kemur fram að félag sem fellur
undir 9. tölul. og d-lið 11. tölul. 2. gr. og móðurfélög stórra
samstæðna skulu láta fylgja í yfirliti með skýrslu stjórnar ýmsar
ófjárhagslegar upplýsingar. Við birtingu ársreikninga ársins
2016 voru margar stjórnir félaga sem beygðu frá þessari grein
laganna með vísan í að lagasetningin hefði borist seint og því
ekki hægt að upplýsa um þessi atriði í ársreikningi 2016 en
bentu á að upplýsingagjöfin yrði betri fyrir árið 2017.
Þessi lagagrein er óljós að mati greinarhöfundar og þá sérstak-
lega hvaða félög skulu flokkast undir ófjárhagslega upplýsinga-
gjöf. Það sem einna helst er að vefjast fyrir notendum laganna
er skilgreiningin á „og“ í greininni. Þarf félag að uppfylla ein-
göngu að vera eining tengd almannahagsmunum eða þarf það
að uppfylla að vera eining tengd almannahagsmunum og stórt
félag og síðast en ekki síst þarf móðurfélag stórrar samstæðu
að eingöngu uppfylla stærðarmörkin eða þarf það einnig að
vera eining tengd almannahagsmunum?
Í minnisblaði Reikningsskilaráðs kemur fram að ráðið telur
visst að ósamræmi sé á milli tilskipunarinnar og ársreikninga-
laganna en hallast að því að greinin eigi ekki við um einingar
tengdar almannahagsmunum sem ná ekki stærðarmörkunum.
Í minnisblaði Ársreikningaskrár kemur ekki fram sami skilning-
urinn en þar segir að einingar tengdar almannahagsmunum og
móðurfélag stórrar samstæða skuli birta ófjárhagslegar upp-
lýsingar.
Eins og bersýnilega sést hefur þessi grein skapað óvissu fyrir
félög sem hvert á fætur öðru munu birta ársreikninga á næst-
unni. Því vísar greinahöfundur til orða Reikningsskilaráðs sjálfs:
„Ástæða kann að vera til að skoða þetta nánar“.
Íslenska
Í ársreikninga lögunum kemur fram að texti ársreiknings skuli
alltaf vera á íslensku en að auki á ensku ef þörf krefur. Þessi
breyting kemur fram í umsögn Íslensk málanefndar við nýju
ársreikningalögin með vísan til laga um stöðu íslenskrar tungu
og íslensks táknmáls og til íslenskrar málstefnu. Þessi breyting
hjálpar íslenskunni að festa sig í sessi í alþjóðlegu umhverfi og
á að tryggja það að íslenska verði notuð á öllum sviðum
íslensks samfélags. Greinahöfundur er sammála því að íslensk-
an á undir höggi að sækja og þurfum við að tryggja framtíð
hennar en telur það ekki réttu leiðina í gegnum ársreikninga-
lögin.
Félög sem starfa á alþjóðlegum vettvangi með erlenda stjórn-
armenn eiga erfitt með að kyngja þessari breytingu. Margir
ársreikningar ársins 2016 höfðu fyrirvara á forsíðu sinni til
Ársreikningaskrár þar sem fram kom að íslenska útgáfan væri
þýðing og væri munur á enskri og íslenskri útgáfu ársreiknings
gildir enska útgáfan framar.
Nú hefur Ársreikningaskrá með minnisblaði sínu tekið af allan
vafa og munu eingöngu taka við ársreikningum á íslensku og
sé fyrirvari eins og lýst var hér að undan verði gerð krafa um
nýjan hluthafafund félagsins áður en ársreikningaskrá tekur
þau til opinberar birtingar. Að mínu mati tel ég þetta afturför í
alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, greinahöfundur ætti erfitt með
að undirrita ársreikning á Svahili sem þó milljónir manna tala,
ímyndið ykkur fyrir erlenda stjórnarmann að þurfa að undirrita
á íslensku sem örfáir eyskeggjar í norðri tala.
áhriF alþjóðlegra reikningsskilastaðla
Ein af grunnreglum ársreikningalaga er sú að félög skulu semja
ársreikning í samræmi við lög um ársreikninga, reglugerðir og
settar reikningsskilareglur eftir því sem við á og sé ekki mælt
fyrir um tiltekið atriði í lögum þessum eða reglugerðum skal
fara eftir viðeigandi ákvæðum í settum reikningsskilareglum.
Því vaknar spurningin, hvað eru settar reikningsskilareglur? Sá
vafi var tekinn af með skilgreiningu nr. 35 en þar segir að settar
reikningsskilareglur séu reglur reikningsskilaráðs og alþjóðlegir
reikningsskilastaðlar (IFRS).
Nú er því orðið skýrt að taki ársreikningalögin ekki á tilteknu
atriði skuli leita á náðir alþjóðlegra reikningsskilastaðla á meðan
reikningsskilaráð hefur ekki gefið út reglur um það.
Greinarhöfundi fannst þetta atriði himnasending fyrst um sinn,
þá þyrfti ekki að setjast á rökstóla þegar vantaði rökstuðning
því þá væri hægt að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Við nánari eftirgrennslan rennur á mann tvær grímur.
Nú eru ýmsir nýir reikningsskilastaðlar alþjóðlega reiknings-
skilaráðsins að taka gildi eins og IFRS 9, IFRS 15, IFRS 16 og
svo lengi mætti telja en leggjum áherslu á IFRS 16. Í stuttu
máli hafa alþjóðlegir reikningsskilastaðlar nú breytt túlkun sinni
á leigusamningum og er ekki gerður greinarmunur á fjármögn-
unarleigusamningi og rekstrarleigusamningi og skulu því allir
lengri leigusamningar sem ekki eru undir „low-value“ hugtaki
(undir 500 þús.kr.) vera eignfærðir og skuldfærðir.
Sé litið til nýju ársreikningalagana kemur fram að fjármögnun-
arleigusamningar skulu færðar í samræmi við settar reiknings-
skilareglur og ekki er minnst á orðið rekstrarleigusamningur.