FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 29
29FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
Ár EUR þús.
Handbært fé Eigið fé móðurfélags
Óráðstafað eigið fé Bundinn reikningur Þýðingarmunur
2017 0 0 455 -38
2018 0 0 1.608 -180
2019 1.000 1.000 3.942 -504
2020 4.235 4.235 706 -706
Ár ISK þús.kr. ISK þús.kr.
Móðurfélag
Hagnaður Arður Eigið fé í árslok óinnleyst Fært á bundinn reikning Bókfært verð eignarhluta
2017 50.000 50.000 50.000 50.000
2018 150.000 0 200.000 150.000 200.000
2019 500.000 -150.000 550.000 -350.000 0 200.000
2020 100.000 -550.000 100.000 -350.000 -200.000 -250.000
2020 250.000 0 350.000 600.000 350.000
Þessi staða er ekki upplýsandi fyrir lesandann á hinu bundna eigin fé þar sem nú virðist vera 706 þús. evrur vera bundnar vegna
hagnaðar fyrri ára í dótturfélögum en raunin er að hagnaðurinn hefur allur verið greiddur út. Þetta hefur þó engin áhrif á skiptingu
milli óráðstafaðs eigin fjár og bundins eigin fjár, heldur einungis innbyrðisskiptingu þess eigin fjár sem er bundið.
Viðskipti milli Félaga innan sömu samstæðu
milli félaga innan sömu samstæðu, sem ekki hefur verið innleystur með sölu til aðila utan samstæðunnar, við mat á verðmæti í
dótturfélagi. Það þýðir að ekki skuli færa hlutdeildartekjur í dótturfélagi af slíkum innri viðskiptum.
Höldum okkur við sama dæmi og hér að framan en breytum aðeins forsendum. Hagnaður ársins 2019 myndaðist vegna sölu á
fasteign félagsins og var söluhagnaður eignarinnar 350 millj.kr. en eignin var keypt af systurfélagi þess, Fasteignafélaginu C.
Í árslok 2020 er því eigið fé rekstrarfélagsins B orðið 100.000
en vegna óinnleysta söluhagnaðarins er bundinn reikningur
kominn í núll því ekki er hægt að færa hann neikvæðan?
Rekstrarfélagið B myndar síðan hagnað á árinu 2021 og hagn-
aðurinn er innleystur innan samstæðunnar með sölu til þriðja
aðila.
Við þessar aðstæður er staða á bundnu eigin fé móðurfélags-
ins komið upp í 600 millj.kr. en eigið fé dótturfélagsins B þó
samt einungis 350 milljónir. Þetta eru þó þær fjárhæðir sem
hafa verið færðar gegnum rekstrarreikning móðurfélagsins að
teknu tilliti til móttekins arðs. Vandamálið liggur í að arðurinn
kemur á undan innlausn hagnaðarins hjá móðurfélaginu.
Þessar aðstæður geta einnig komið upp ef móðurfélag og
dótturfélag beita ekki sömu reikningsskilaaðferðum, sbr. 75. gr.
laga um ársreikninga þar sem reikningsskil dótturfélags eru
aðlöguð að reikningsskilaaðferðum móðurfélagsins.
Við þær aðstæður að arðgreiðsla kemur á undan innlausn hagn-
aðar hefur það varla verið ætlun löggjafans að binda eigið fé
móðurfélagsins með þessum hætti en þetta virðist vera rembi-
hnútur á bundnu eigin fé miðað við orðalag 41. gr. laga um árs-
reikninga, sem byggir á ársreikningatilskipun ESB 2013/34.
Lausnin væri þá ef til vill að selja hlutdeildina í dótturfélaginu B
til að fá að færa breytinguna á óráðstafað eigið fé.
SEINNI TÍMA VANDAMÁL?
Þau félög sem eiga eignarhluti í dóttur- og hlutdeildarfélögum
við gildistöku laganna geta þó greitt sínum hluthöfum arð
vegna þeirra og þurfa því ekki að hafa miklar áhyggjur að þess-
um takmörkunum. Kannski er allt að fara í klessu vegna þess
en það er seinni tíma vandamál. Það verður engu breytt í kvöld.
Jón Rafn Ragnarsson