FLE blaðið - 01.01.2018, Page 6

FLE blaðið - 01.01.2018, Page 6
6 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 Ég fór að spila golf af alvöru árið 2012, en hafði átt golfsett frá því 1987 þegar tveir vinir mínir sem voru að flytja heim frá Bandaríkjunum eftir nám, kipptu með golfsetti fyrir mig. Það fór reyndar strax í geymsluna og er þar enn lítið notað, því barnauppeldið tók á þessum árum allan minn tíma utan vinnu. Við hjónin erum í golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og rokkar forgjöfin upp og niður fyrir 22. Við förum reglulega erlendis í golf, mest til Spánar. Við göngum alltaf í golfinu því Ragnheiður tekur ekki annað í mál. starFsFerill Ég byrjaði að vinna hjá Endurskoðunarmiðstöðinni N. Manscher (nú PwC) í febrúar 1986 með námi og var þar til 1989 þegar ég fór yfir til eignarleigufyrirtækisins Lindar og þaðan til Landsbankans fram til 1995. Þá fór ég til SamEnd, síðar BDO Endurskoðunar og svo til Ernst & Young sem þá var, frá 1997 til 2000 og náði loksins löggildingunni á þeim tíma. Löggildingarprófin eru nefnilega þræl erfið eins og þeir þekkja sem reynt hafa. Árið 2000 sameinuðust Ernst & Young og KPMG þar sem ég hóf störf sem löggiltur endurskoðandi og sem meðeigandi frá ársbyrjun 2001 og er ég þar enn. Hjá KPMG starfaði ég einnig sem sviðstjóri ráðgjafarsviðs í sjö ár og fór endurskoðunin í annað sætið á meðan, en er nú aftur farinn að starfa við endurskoðun sem mér finnst skemmtilegt. Eigendur hjá KPMG þurfa að selja eignarhluta sinn þegar þeir verða 63 ára. Ég er ekki farinn að huga að starfslokum, það geri ég ekki fyrr en ég hef lokið störfum mínum sem formaður FLE og á þá væntanlega 4-5 góð ár eftir sem eigandi. Formennskan og Félag löggiltra endurskoðenda Ég hef nú starfað fyrir félagið sem varaformaður í tvö ár og þekki starfsemi félagsins alveg ágætlega. Það er prýðisfyrir- komulag að gegna varaformannsstöðunni áður en maður tekur við formennskunni, því maður veit þá betur hvað starfið felur í sér. Félagið er rótgróið og í eðli sínu íhaldssamt. Starfsemin er í föstum skorðum og það eru engar byltingarkenndar breytingar í farvatninu á næstu tveimur árum. Það sem kom mér mest á óvart í starfi félagsins er hve mikil- vægur samráðsvettvangur það er ekki síst í samskiptum við opinbera aðila eins og við lagasetningar og lagabreytingar. Ef félagið væri ekki til staðar þá væri mjög erfitt að leita álits stéttarinnar á ýmsum málum sem hið opinbera og aðrir leita til félagsins með. Félagið gagnast því bæði stéttinni og endur- skoðunarstofunum með því að gefa álit og vinna að hagsmun- um þeirra og benda stjórnvöldum á hvaða áhrif ýmislegt sem stendur til að gera, geti haft á þá, viðskiptalífið og samfélagið. Formannsstarfinu nú fylgir forsæti í norræna endurskoð- Ágúst býður nýja löggilta endurskoðendur velkomna í félagið

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.