FLE blaðið - 01.01.2018, Side 11

FLE blaðið - 01.01.2018, Side 11
11FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 hefur boðað að hann vilji sjá að framtalsskil verði stytt enn frekar en hefur hann viljað gera allar breytingar á skilum í góðu sam- starfi við félagið og kunnum við honum bestu þakkir fyrir gott samstarf. Þrátt fyrir það er það ljóst að hagsmunir félagsmanna fara ekki saman við hagsmuni embættisins hvað skiladagsetn- ingar varðar og því eru menn ekki alltaf sammála. Á nýliðnu ári settu margir félagsmenn sér innri markmið um að flýta skilum og skila með jafnari hætti en áður og kom þá tvennt til, annars vegar margra ára hvatning frá Ríkisskattstjóra um að gera betur og hins vegar að með nýjum lögum um ársreikninga er félögum gerð sekt ef þau ekki skila ársreikningi innan tilskilins tíma. Félagsmenn lögðu margir hverjir mikið á sig til að kalla verk- efni inn og vinna þau fyrr og var það oft á kostnað sumarfría, auk ómældrar yfirvinnu og álags. Það er skemmst frá því að segja að nýjustu tölur frá embættinu sýna að verulegur árangur náðist með skilin og eru skilatölur mun betri en á fyrra ári. Á fundi með Ríkisskattstjóra í október síðastliðinn lýsti hann yfir ánægju sinni með hin bættu skil og á þeim fundi óskuðu fulltrúar félagsins eftir því að gefin yrðu grið í einhvern tíma um frekari styttingu skila- frests. erlent samstarF Enn einu sinni er minnt á mikilvægi erlends samstarfs fyrir félagið, þangað er sótt andagift, stuðningur og innsýn í hvernig framtíðin horfir við, bæði hvað varðar ört vaxandi tækni, áherslur og þróun mála í löndunum í kringum okkur. Á þessum vettvangi getur félagið einnig komið eigin sýn á framfæri og haft áhrif. Því ber einnig að fagna að það hefur komið í hlut nýs formanns FLE að taka við formennsku Norræna endurskoðendasambandsins næstu tvö árin. Við viljum að lokum þakka fráfarandi stjórn og nefndum fyrir ánægjulegt samstarf og ykkur félagsmenn góðir að hafa tekið þátt í þeim atburðum sem félagið hefur staðið fyrir á liðnu starfs- ári. Margrét Pétursdóttir og Sigurður B. Arnþórsson Morgunkorn um 4 iðnbyltinguna Stjórnin í janúar 2017: Ágúst, Ljósbrá, Margrét, Sif og Guðni Russell Guthrie talar á Haustráðstefnu. Erlend samskipti og tengsl leiða af sér góða erldenda fyrirlesara til landsins Skúli Eggert ríkisskattstjóri, fastur gestur á Skattadegi FLE

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.