FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 22

FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 22
22 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 Því er ekki hægt að draga aðra ályktun en svo að öll félög sem gera upp samkvæmt íslensku ársreikningalögunum þurfi að fara eftir IFRS 16. Undirritaður telur það ekki hafa verið mark- mið alþjóðlega reikningsskilaráðsins með nýja staðlinum að Jói málningarmeistari á Íslandi skyldi eign- og skuldfæra þriggja ára rekstrarleigusamning sinn vegna nýju málningarvélarinnar. bundnir eigin Fjár reikningar Með breytingum á ársreikningalögunum komu fram mörg til- felli þar sem félög skyldi binda hluta af óráðstöfuðu eigið fé sínu, til dæmis þróunarkostnað, við beitingu hlutdeildaraðferð- ar, óinnleystum hagnaði verðbréfa o.fl. Með þessari breytingu var verið að mæta þeirri áhættu sem skapaðist hér á árum áður þar sem óráðstafað eigið fé félaga var mögulega litað af óinn- leystum hagnaði. Hugsunin á bakvið þessa útreikninga er jákvæð þar sem verið er að minnka áhættu lánadrottna á að arðgreiðslur félaga verði of háar en fyrir reikningsskilagúrúa vöknuðu margar spurning- ar. Hvernig átti að byrja? Má mynda neikvæða reikninga? Frádráttarbærni arðs vegna fyrri ára? Er nóg að taka ákvörðun um arðgreiðslu? Má netta á milli dótturfélaga? Fyrst um sinn töldu flestir þetta vera einkamál reikningsskilag- úrúa sem væru fastir í smáatriðum laganna til að selja aukatíma en þegar félög áttuðu sig á því að með þessum ákvæðum væri verið að hafa áhrif á arðgreiðslur vaknaði áhugi fleiri aðila. Sum þessara atriða voru afgreidd óformlega í minnisblaði Reikningsskilaráðs en mörgum atriðum var velt yfir á túlkun Ríkisskattsstjóra á arðgreiðsluheimild félaga. Þar sem ekki hafa verið gefnar út formlegar reglur og túlkanir á þessum atriðum eru félög í allra versta falli að úthluta ólög- mætum arði sem eru hörð viðurlög við. lokaorð Með þessari grein vildi greinarhöfundur minna okkar góðu stétt endurskoðenda á þá staðreynd að í hartnær tvö ár hafa nú verið í gildi lög sem hafa víðtæk áhrif á okkar störf, hvort sem um er að ræða við aðstoð við uppsetningu ársreikninga smærri félaga eða endurskoðun á stórfyrirtækjum þar sem við áritum með faggildingu okkar að veði. Því hljótum við sem félag að vilja leggja áherslu á að þessi veigamiklu lög verði taf- arlaust skýrð frekar með reglugerðum, reglum og leiðbeining- um til þess að stjórnir fyrirtækja landsins hafi haldbærar reglur við uppsetningu ársreikninga í stað óteljandi minnisblaða þar sem lögin eru túlkuð á þvers og kruss. Atli Þór Jóhannsson Frrá Reikningsskiladegi Jón Arnar Baldurs bar hita og þunga af yfirferð nýrra ársreikningalaga

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.