FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 24

FLE blaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 24
24 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 Franklín og Arnór Eggertsson voru einir í herbergi en við hinir deildum herbergjum. T.d var Halldór Arason á bak við hurð hjá Stefáni Franklín en Benóní Torfi Eggertsson deildi svefnher- bergi með Sigurði Pálma Sigurðssyni þar sem skrifborðin kom- ust varla fyrir. Á þeim tíma er við hófum störf réði einnig ríkjum á stofunni Árni Björnsson mikilsvirtur endurskoðandi og lögmaður en hann lést fyrir aldur fram á árinu 1978. Hann er nefndur hér til sögunnar því að hann þótti með afbrigðum góður penni og kærur hans til skattstjóra voru margar listasmíð. Eitt sinn sendi hann vísu með kæru til Skattstofunnar í Reykjavík vegna útstrikunar á ákveðnum gjaldfærðum kostnaði í rekstrarframtali umbjóðanda hans: Látin var á leiði manns, lítil kveðja vinar hans. Fátæklegur fölur kranz, sem fór í taugar skattstjórans. Skattstjóri svaraði kærunni í sömu mynt: Frekur þykir mér forstjórinn, er frádrátt vantar á skattinn sinn. Látinn er kærasti kunninginn, komin hans minning á reikninginn. Siggi kom úr Versló, en við hinir komum úr MR, MT og MH þannig að ekki fór mikið fyrir viðskiptaþekkingu annarra en Sigga. Nýliðanámskeiðin fólust í því að læra á mekaníska og háværa samlagningarvél oftast af Addo-X gerð og æfa sig á henni í marga daga til að ná upp almennilegum hraða og þar með var nýliðanámsskeiðinu lokið. Samlagning var málið og vinnan til að byrja með fólst í því að leggja saman endalausa dálka af handskrifuðum tölum í dagbókum og höfuðbókum, sem hinir reyndari tóku við, færðu upp á „balance“ og luku við gerð árs- reiknings. Sumar- og haustvinna nema fólst í að loka reiknings- árinu í bókhaldinu með því að tvíundirstrika dálkana í dagbók- unum og höfuðbókinni og opna nýtt ár í höfuðbókinni með því að færa undirstrikaða lokatöluna á efnahagsdálkunum sem opnun neðar á blaðsíðuna í höfuðbókinni. Langan tíma jafnvel viku gat tekið að loka bókhaldsbókum stórra fyrirtækja og loka þannig árinu og færa opnunarfærslur fyrir nýtt ár sem í dag tekur tölvuna aðeins andartak. Nemarnir voru á jafnaðarkaupi, fengu ekki eftirvinnu borgaða, hvorki launað sumarfrí né veikindafrí og var almennt bannað að fara í próf á vorin og urðu þess í stað að taka haustpróf ef þeir voru í námi. Sumarfríin voru þá gjarnan notuð til próflestrar. Á þessum tíma þekktist að nemar yrðu að kaupa samlagningar- vélarnar mikilvægu sjálfir, af því að það var svo stórt tækifæri að fá að vinna á endurskoðunarskrifstofu að sögn eigendanna. Ekki var óalgengt að verðið á þessum vélum slagaði upp í mán- aðarkaup nemans. Á þessum tíma voru nefnilega eigendur eigendur og nemar nemar. Upphafsfundir, áhættumat og sviksemisumræða eru ekki nýtt af nálinni, en var með nokkuð öðru sniði þegar við stigum okkar fyrstu skref á endurskoðunarskrifstofunni. Þá settist stjórinn oft niður og fékk sér í glas með forráðamönnum félagsins og var þá farið vítt og breitt yfir málefni viðskiptavinarins þannig að eftir þær umræður voru allir hlutir sem máli skiptu við undir- búning endurskoðunarinnar og þekkingu á viðskiptavininum á hreinu. Neminn sá svo um að fletta fylgiskjalamöppunum og krota upphafsstafi sína á skjölin með grænum penna til stað- festingar á unninni endurskoðunarvinnu. Úrskurður Skattstjóra „Balance“ bllöð

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.