FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 2

FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 2
ÚTG: FÉLAG LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA © Aðsendar greinar í blaðinu eru á ábyrgð höfunda en að öðru leyti er útgáfa blaðsins á ábyrgð ritnefndar FLE. FLE blaðið má ekki afrita með neinum hætti, að hluta til eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfundarrétthafa. VINNSLA BLAÐSINS RITNEFND FLE: Benóní Torfi Eggertsson, formaður, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Herbert Baldursson Kjartan Arnfinnsson Prentun: GuðjónÓ Umsjón: Hrafnhildur Hreinsdóttir Janúar 2020, 42. árgangur 1. tölublað SKRIFSTOFA FLE, HELSTU UPPLÝSINGAR Skrifstofa FLE, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, er opin virka daga kl. 9-15 Sími: 568 8118, Tölvupóstfang: fle@fle.is, Vefsíða FLE: www.fle.is Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri sigurdur@fle.is Hrafnhildur Hreinsdóttir, skrifstofustjóri fle@fle.is Nú þegar nýr áratugur er að renna upp kemur FLE blaðið út í 42. sinn frá árinu 1978 og hefur aldrei verið betra. Ritnefndarfólk hefur herjað á samstarfsmenn sína og annað samferðafólk sem hafa skilað af sér góðum greinum þrátt fyrir rysjótta veðráttu og flensuskot og að auki hafa ritnefndarmeðlimir lagt hönd á plóginn með greinaskrif. Nýja blaðið er eins og fyrri blöð fullt af athyglisverðum og skemmtilegum greinum. Fyrst má nefna áhugaverðar greinar annars vegar um raunverulega eigendur og hins vegar um peningaþvætti og hvað endurskoðendur þurfa að gera því sambandi. Bæði þessi efni ættu að vekja athygli endurskoðenda þar sem þau koma inn á störf margra þeirra auk þess sem þau hafa mikinn snertiflöt við atvinnulífið. Önnur áhugaverð grein er rannsókn á gæðum íslenskra ársreikninga þar sem skoðað er fylgni óskráðra félaga við íslensk ársreikningalög. Einnig má nefna ítarleg grein um skattlagningu tekna af höfundarréttindum og aðra grein um eftirlit, hlutverk og valdheimildir ársreikningaskrár. Svo er í blaðinu tímamótagrein um það hvernig endurskoðunarfyrirtæki geta sem best tileinkað sér heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna svo kölluð SDG markmið (Sustainable development goals). Að lokum er frásögn eins félagsmanns af deilu hans við endurskoðunarráð um gildi alþjóðlegra endurskoðunarstaðla á Íslandi. Starfsemi FLE á árinu fær sína hefðbundnu umfjöllun og þar á meðal er viðtal við nýjan formann FLE sem ber heitið að það sé gæðastimpill að vera í Félagi löggiltra endurskoðenda. FLE blaðið kemur alltaf út með hækkandi sól og má í því sambandi nefna að dagsbirtan hefur aukist um rúma eina klukkustund frá jólum fram að miðjum janúar og erum við því örugg um að efni FLE blaðsins hafi sömu áhrif á lesendur og aukin dagsbirta. Að lokum viljum við þakka greinarhöfundum fyrir góðar greinar. Það er aldrei ofsagt og virkilega þakkarvert að hafa aðgang að góðu fólki sem er tilbúið til að nota frítíma sinn til að skrifa góðar greinar í blaðið. Janúar 2020 Benóní Torfi Eggertsson, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Herbert Baldursson og Kjartan Arnfinnsson FYLGT ÚR HLAÐI

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.