FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 21

FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 21
21FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 Í millitíðinni hafði það gerst, að á aðalfundi FLE 30. október 2015 kvaddi sér hljóðs Sigurður Tómasson fyrrum formaður félagsins. Í ræðu sinni, sem hefur yfirskriftina „Einelti er ógeð“, fór hann yfir framkomu ráðsins gagnvart mér og gagnrýndi harðlega. Í framhaldi af ræðu Sigurðar ákvað ég að kæra ráðið til ráðherra fyrir einelti með bréfi dags. 18/5 2016. Ráðuneytið svaraði kærunni með bréfi dags. 19/10 2016. Í stuttu máli þá var niðurstaðan sú, að endurskoðendaráð hefði farið eftir reglum um gæðaeftirlit og að ekki væri ástæða til að grípa til aðgerða gagnvart ráðinu. Þriðja boðun í gæðaeftirlit barst mér síðan með bréfi dags. 18/5 2017 frá ráðinu og enn með orðunum „nafn yðar kom fram í úrtaki...“ osfrv. Eftir ítrekun og talsverð bréfaskipti lagði ráðið í þriðja sinn til við ráðherra, með bréfi dags. 17/11 2017, að réttindi mín yrðu felld niður. Tillagan hlaut ekki afgreiðslu ráðherra og var nú tíðindalítið í rúmt ár í þessu máli mínu. Snemma á árinu 2018 tók ég þá ákvörðun að leggja inn réttindi mín fyrir árslok, enda fyllti ég sjö tugi ára í lok nóvember það ár. Samskiptin við ráðið og framkoma þess í tengslum við starfslok mín eru frásagnarverð. Þann 14/12 sendi ég ráðuneytinu ósk um að fá að leggja inn réttindi mín og skyldi innlögnin miðast við 31/12 2018. Mér barst bréf frá ráðinu dags. 31/1 2019 þar sem ráðið kvaðst hafa upplýsingar frá FLE um að ég hefði ekki uppfyllt kröfur til endurmenntunar fyrir árið 2018. Þessar kröfur hef ég ævinlega uppfyllt. Ég svaraði ráðinu um hæl og benti á beiðni mína um innlögn réttinda í desember 2018 og sagði m.a.: „Væri nú ekki rétt hjá endurskoðendaráði að afgreiða hlutina í réttri röð og hafa e.t.v. í leiðinni í huga málshraðareglu stjórnsýslulaganna?“. Þann 5/4 2019 staðfesti ráðuneytið síðan beiðni mína um innlögn réttinda. Í framhaldi þar af óskaði ég eftir afriti af umsögn endurskoðendaráðs til ráðherra um innlögnina. Í bréfi ráðsins er m.a. að finna eftirfarandi: „Eins og áður hefur komið fram hefur Guðmundur Jóelsson ekki sinnt lögbundinni skyldu endurskoðenda til að stunda endurmenntun. Einnig liggur fyrir að Guðmundur hafi óskað eftir því að fá að leggja inn réttindi sín. Í ljósi beiðni um innlögn réttinda hefur endurskoðendaráð ákveðið að fylgja máli hans ekki eftir og var málinu lokað með ákvörðun ráðsins í dag“. Þar sem hér var um bein ósannindi að ræða gat ég engan veginn sætt mig við þessi orð og kvartaði með bréfi dags. 7/5 2019 til ráðherra Fór ég fram á, að endurskoðendaráð drægi hin ósönnu orð um endurmenntunina til baka og bæðist afsökunar á þeim. Jafnframt að ráðherra áminnti ráðið og veitti því tiltal fyrir óforsvaranleg vinnubrögð. Ráðuneytið svaraði með bréfi dags. 31/5 2019 þar sem það taldi sig ekki hafa vald til slíks. Lokaorð í bréfinu eru þessi: „Eftirlit ráðuneytisins á grundvelli laga um endurskoðendur er almenns eðlis og eru möguleikar ráðuneytisins til að hafa afskipti af meðferð einstakra mála hjá endurskoðendaráði takmörkunum háðir“. Hér virtist komið að leiðarlokum og þó. Þann 10/9 2019 beindi ég kvörtun til Umboðsmanns Alþingis þar sem framangreindir málavextir voru reifaðir. Umboðsmaður hefur nú, með bréfi dags. 14/11 2019 ritað ráðuneytinu bréf um málið. Bréfið verður vart skilið á annan veg en þann, að hann telji að ráðuneytinu hafi borið að afgreiða fyrrnefnda kvörtun mína frá 7/5 2019 efnislega og fari fram á, að slíkt verði gert, ella muni hann gera það. Þannig stendur málið nú. Deila þessi hefur frá upphafi, í grunninn, snúist um óvissu um lagalegt gildi hinna alþjóðlegu endurskoðunarstaðla á Íslandi. Í Morgunblaðinu 19/9 2015 var eftirfarandi eftir mér haft: „Það óskiljanlegasta af öllu í þessu máli er þó það, að ráðuneytið og aðrir sem málið varðar hafa með öllum ráðum komið sér undan því að svara efnislega þeim grundvallarspurningum sem deila þessi snýst um, þ.e. um gildi alþjóðlegu endurskoðunarstaðlanna á Íslandi“. Litlu síðar: „Ástæða þessar óvissu snýr einkum að þýðingu, skuldbindingargildi og formlegri birtingu staðlanna“. Spurningunum verður sennilega aldrei svarað úr þessu. Ný og gjörbreytt lög um endurskoðendur hafa tekið gildi og vonandi leynast ekki í þeim álíka ágreiningsefni og hér hefur verið fjallað um. Guðmundur Jóelsson

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.