FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 23
23FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020
Síðast en ekki síst vil ég nefna líflegt erindi sem við sem sátum
ráðstefnu félagsins í Brussel upplifðum en það var eitthvað
sem mætti kalla „leikþáttur“ með yfirskriftinni „Creativity, You
and the Future“ eða í lauslegri þýðingu – sköpunarmáttur, þú
og framtíðin sem fluttur var af hinum þekkta fyrirlesara Nigel
Barlow.
Á starfsárinu voru haldin átta námskeið, fræðslufundir og aðrir
viðburðir og var mætingin nánast sú sama og árið áður þrátt
fyrir að námskeiðin hafi verið einu færri vegna ferðar
félagsmanna til Brussel. Má segja að þar hafi eitt námskeið
slegið í gegn hvað varðar mætingu en tæplega eitt hundrað
félagsmenn mættu á umfjöllun Signýjar og Atla Þórs um
meðferð á eignarhlutatengdum greiðslum (IFRS 2 og lög um
ársreikninga). Var það fjölmennasta mætingin á einstaka
viðburð fyrir utan ráðstefnur félagsins en að venju var
Skattadagur FLE best sótti viðburðurinn en þar mættu 184.
Einnig má nefna áhugavert námskeið um þrotabú og reglur
sem þar gilda og aðkomu endurskoðenda að þrotabúum eða
réttara sagt aðkomuleysi. Þessu málefni var síðan fylgt eftir
með bréfi til allra dómstjóra á landinu þar sem bent var á það
ákvæði laga um gjaldþrotaskipti hvað varðar skipan skiptastjóra
að í þeim tilfellum þar sem þörf er á skipan tveggja skiptastjóra
þá sé mjög mikilvæg sú sérfræðiþekking sem endurskoðendur
búa yfir sem snýr m.a. að reikningshaldi og fjármálum
fyrirtækja. Í slíkum tilfellum eiga héraðsdómarar því að taka
það til alvarlegrar skoðunar og sjá til þess að annar af tveimur
skiptastjórum sé endurskoðandi. Afrit af bréfinu var jafnframt
sent á alla félagsmenn og má segja að almenn ánægja hafi ríkt
með þetta frumkvæði félagsins enda eitt af megin hlutverkum
þess að gæta hagsmuna endurskoðenda og styðja við
starfsumhverfi þeirra.
Á Skattadegi steig meðal annarra í ræðustól nýskipaður
Ríkisskattstjóri sem sagði frá hugmyndum sínum um nánara
samstarf við félagið með stofnun vinnuhóps til þess að vinna
með ábendingar FLE. Þegar leið á árið þá sýndi embætti hans
það í verki og gerðar voru margar smáar en góðar breytingar á
fjölmörgum lögum sem munu skila endurskoðendum til að
mynda lengri framtalsfrest en verið hefur.
NEFNDARSTÖRF
Fastanefndir félagsins eru sex talsins, en þær eru: Álitsnefnd,
Endurskoðunarnefnd, Gæðanefnd, Menntunarnefnd,
Reikningsskilanefnd og Skattanefnd. Þessar nefndir eru
félaginu mjög mikilvægar og veita starfsemi þess ómetanlegan
faglegan stuðning.
Álitsnefndinni berast ýmis erindi árlega til skoðunar og þá
aðallega frá Nefndasviði Alþingis og bar þar hæst á liðnu ári
frumvarp til laga um endurskoðendur og endurskoðun og veitti
nefndin ítarlega umsögn um frumvarpið sem nú er orðið að
lögum. Endurskoðunarnefndin fylgist að venju með því sem er
að gerast á sviði endurskoðunar og kom meðal annars að
umsögn nýrra laga um endurskoðendur ásamt því að
skipuleggja Endurskoðunardag félagsins. Eitt af hlutverkum
Menntunarnefndarinnar er að hafa heildaryfirsýn á framboði og
vali umfjöllunarefnis á ráðstefnum og námskeiðum og þá
sérstaklega Haustráðstefnu félagsins. Jafnframt ber nefndinni
að fylgjast með námsframboði innan háskólaumhverfisins og í
því samhengi hélt nefndin meðal annars fund með svokallaðri
ungliðanefnd FLE sem er stjórnskipuð nefnd á vettvangi FLE.
Að venju var hlutverk Gæðanefndarinnar að stýra framkvæmd
gæðaeftirlitsins á grundvelli reglna þar um sem settar eru af
Endurskoðendaráði. Jafnframt á nefndin fundi með ráðinu
varðandi fyrirkomulag eftirlitsins og skipuleggur ásamt ráðinu
Athyglisverður endurskoðunardagur.