FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 26

FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 26
26 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 Á undanförnum árum hefur félagslegt, umhverfislegt og efnahagslegt virði sem fyrirtæki skapa fyrir hagsmunaaðila sína fengið mikla athygli í viðskiptalífinu. Þrátt fyrir að lengi hafi verið viðurkennt að samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja leiki einstakt hlutverk í að bæta velferð þjóðfélaga, þá hafa markmið um samfélagsmál ekki skilað sér nægilega vel í stefnumótun fyrirtækja. Litið hefur verið á þetta hlutverk sem óbeina afleiðingu af starfsemi þeirra og að ólíklegt sé að það muni leiða til verðmætasköpunar til lengdar1. Þetta hefur verið að breytast og víða um heim hafa fyrirtæki í auknu mæli verið gerð ábyrg fyrir hlutverki sínu í að skapa samfélagslegt virði. Þá eru vaxandi vísbendingar um að hagsmunaaðilar geri kröfu um að fyrirtæki taki að sér stærra hlutverk til að taka á samfélagsmálum. Á Íslandi hefur til dæmis tilskipun Evrópusambandsins 2014/95/EU um ófjárhagslegar upplýsingar verið innleidd í lög um ársreikninga nr. 3/2006. Innleiðingin er gerð til að bæta upplýsingagjöf til hagsmunaaðila 1. EPIC (Embankment project for inclusive capitalism) report HEIMSMARKMIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA UM SJÁLFBÆRA ÞRÓUN – SAMFÉLAGSLEG ÁBYRGÐ ENDURSKOÐENDA Margrét Pétursdóttir endurskoðandi, Sigurður S. Jónsson og Guðmundur Már Þórsson hjá EY

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.