FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 16

FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 16
16 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 EFTIRLIT, HLUTVERK OG VALDHEIMILDIR ÁRSREIKNINGASKRÁR Ágústa Katrín Guðmundsdóttir endurskoðandi hjá AKG endurskoðun ehf. Stjórnendur skulu leggja mat á mikilvægi og hvaða upplýsingar eru viðeigandi til að tryggja að reikningsskilin gefi glögga mynd samkvæmt skilgreiningu í 5. gr. laga um ársreikninga Hlutverk og valdheimildir ársreikningaskrár er að finna í lögum nr. 3/2006 um ársreikninga (109. og 117. gr.) Þar kemur fram að ársreikningaskrá sé starfsrækt í því skyni að taka á móti, varðveita og veita aðgang að skilaskyldum gögnum ásamt því að hafa eftirlit með að þessi gögn séu í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og settra reikningsskilareglna. Ársreikningaskrá skal þannig gera úrtakskannanir og athuganir á ársreikningum, samstæðureikningum og skýrslum stjórna til að sannreyna að þessi gögn séu í samræmi við ársreikningalög. Einnig skal hún hafa eftirlit með félögum sem skylt er að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum IFRS eða nýta sér heimild til beitingar þeirra samkvæmt kafla VIII í ársreikningalögunum og reglugerð 1606/2002 um beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Áhersluatriði Evrópska verðbréfeftirlitsins (ESMA) eiga líka við um IFRS félög en ársreikningaskrá er meðlimur í þeim samtökum. Mun ríkari heimildir gilda fyrir skráð félög og félög sem gera upp samkvæmt IFRS en félaga sem gera upp samkvæmt íslenskum ársreikningalögum (IS- GAAP). Meðal annars hefur ársreikningaskrá valdheimildir til eftirfarandi aðgerða: • Ársreikningaskrá getur krafist allra þeirra upplýsinga og gagna sem nauðsynleg eru til að framkvæma eftirlitið, þ.m.t. vinnuskjöl sem varða reikningsskil frá stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda félagsins. Ársreikningaskrá getur lagt dagsektir á eftirlitsskyld félög, veiti þau ekki umbeðnar upplýsingar innan hæfilegs frests. • Komist ársreikningaskrá að þeirri niðurstöðu að reikningsskil eftirlitsskylds félags séu ekki í samræmi við ákvæði laganna getur ársreikningaskrá krafist þess að reikningsskilin séu leiðrétt og að félagið birti breytingar og/ eða viðbótarupplýsingar sem nauðsynlegar eru. Skráin getur birt opinberlega upplýsingar um nauðsynlegar breytingar verði félagið ekki við körfum hennar. Þessu til viðbótar getur ársreikningaskrá óskað eftir því við viðkomandi kauphöll að viðskiptum með verðbréf eftirlitsskylds félags verði hætt tímabundið á skipulegum verðbréfamarkaði, þar til félagið hefur birt fullnægjandi reikningsskil og/eða viðbótarupplýsingar að mati ársreikningaskrár. Úrskurði ársreikningaskrár er kæranlegur til ráðherra inna 14 daga frá því hann er kynntur félagi. • Ársreikningaskrá er heimilt að kalla aðila með sérfræðiþekkingu til aðstoðar við eftirlit. Jafnframt er ársreikningaskrá í einstökum tilvikum heimilt að fela sérfróðum aðilum það eftirlit sem ársreikningaskrá er falið samkvæmt lögum þessum.

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.