FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 18

FLE blaðið - 01.01.2020, Blaðsíða 18
18 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 6. Hlutdeildaraðferð a. Sérstaklega mun verða fylgst með að félögum sem skylt er að beita hlutdeildaraðferð geri það. Samkvæmt ársreikningalögum er meginreglan að færa eignarhluti í dóttur- og hlutdeildarfélögum samkvæmt hlutdeildaraðferð. Samkvæmt 40. gr. er heimilt að styðjast við kostnaðarverð þegar heimilt er að halda dótturfélögum utan samstæðureiknings, sbr. ákvæði 70. gr. b. Það er skilyrðum háð að mega „halda dóttur- og hlut- deildarfélögum utan samstæðureiknings“. Þá er eignar- hlutur færður sem sérstakur liður í efnahags reikningi. Halda má þó dótturfélagi utan samstæðu reiknings, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 67. gr., ef: i. það hefur óverulega þýðingu fyrir rekstur eða efnahag samstæðunnar vegna smæðar þess, ii. stjórnun þess er ekki lengur í höndum eigenda þess eða verulegar og varanlegar hömlur koma að miklu leyti í veg fyrir að móðurfélagið nýti rétt sinn yfir eignum dótturfélagsins eða til að stjórna því, iii. [í algjörum undantekningartilvikum]1) ekki er unnt að afla nauðsynlegra upplýsinga tímanlega og án óeðlilegs kostnaðar eða, iv. það hefur ekki áður verið fellt inn í samstæðureikning og móðurfélagið aflaði eignarhlutanna eingöngu í þeim tilgangi að endurselja þá. Liðir 1 til 4 á við um bæði ársreikninga sem gera upp samkvæmt IS-GAAP og IFRS, en liðir 5 og 6 eiga sérstaklega við um ársreikninga sem gera upp samkvæmt IS-GAAP: Um stærðarmörk félaga sem kveðið er á um 2. gr. laga um ársreikninga segir í 11. tölulið e að við útreikning viðmiðunarmarka móðurfélags skuli miða við stærðir í samstæðureikningi fyrir þau félög sem semja slíkan reikning en leggja skal saman viðmiðunarmörk móðurfélags og allra dótturfélaga ef móðurfélagið semur ekki samstæðureikning. Þetta getur leitt til þess að þó svo að móðurfélag færi eignarhlut í dótturfélagi á kostnaðarverði þá teljist móðurfélagið sjálft vera stærra félag en stærðir í ársreikningi þess gefa til kynna. Þetta ákvæði hefur áhrif á upplýsingagjöf í ársreikningi móðurfélags burtséð frá því hvort samstæðureikningurinn er saminn eða ekki og getur einnig haft áhrif að félagi sé skylt að semja samstæðureikning sem leiðir þá til þess að ársreikningur móðurfélags og samstæðureikningur eru orðnir endurskoðunarskyldir þrátt fyrir að móðurfélagið eitt og sér sé undir mörkum endurskoðunarskyldu. Samkvæmt upplýsingum frá ársreikningaskrá hefur verið ákvarðað í nokkrum málum þar sem eignarhlutir í dóttur- og hlutdeildarfélögum hafa verið færðir á kostnaðarverði og hefur niðurstaðan nær undantekningarlaust verið sú að viðkomandi félagi hafi verið skylt að beita hlutdeildaraðferð. Ágústa Katrín Guðmundsdóttir Frá Reikningsskiladegi.

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.