FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 12

FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 12
12 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 LAGABREYTING Með lögum nr. 111/2019 voru breytingar gerðar á ákvæðum um skattlagningu höfundaréttargreiðslna. Annars vegar var við 3. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, aukið svohljóðandi nýjum 4. málslið: „Þrátt fyrir ákvæði 3. tölul. A-liðar 7. gr. skulu greiðslur til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa vegna síðari afnota eftir að verk skv. 1. gr. höfundalaga, nr. 73/1972, hefur verið gert aðgengilegt almenningi, birt eða gefið út, sbr. 2. og 3. gr. sömu laga, teljast til fjármagnstekna án nokkurs frádráttar.“ Hins vegar var við lög nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, aukið svohljóðandi nýrri 21. gr. a ásamt fyrirsögn: „Greiðslur til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa. Ákvæði laga þessara, svo sem um skilaskylda aðila, afdrátt staðgreiðslu og skilaskyldu staðgreiðslu, gilda um greiðslur til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa vegna síðari afnota eftir að verk skv. 1. gr. höfundalaga, nr. 73/1972, hefur verið gert aðgengilegt almenningi, birt eða gefið út, sbr. 2. og 3. gr. sömu laga, sbr. 4. málsl. 3. mgr. 66. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.“ SKATTLAGNING TEKNA AF HÖFUNDARRÉTTINDUM Sigurjón Högnason, lögfræðingur hjá KPMG Nýju ákvæðin hrófla ekki við skattskyldu höfundatekna, þær munu eftir sem áður vera skattskyldar. Nýju ákvæðin breyta því hins vegar hvernig sumar, en ekki allar, höfundatekjur skuli flokkaðar og skattlagðar Breytingar þessar öðluðust gildi við upphaf árs 2020 og koma til framkvæmda við staðgreiðslu skatts á árinu 2020 og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2021. Í eftirfarandi umfjöllun eru þessi ákvæði laga nr. 111/2019 nefnd nýju ákvæðin. Á grundvelli heimildar í 1. mgr. 121. gr. laga nr. 90/2003 setti fjármála- og efnahagsráðherra reglugerð nr. 1245/2019 um skattlagningu tekna af höfundarréttindum, sem gildi tók 1. janúar 2020. Hér eftir í umfjöllun þessari er sú reglugerð nefnd nýja reglugerðin. BREYTT SKATTLAGNING Um langan aldur hefur talist til skattskyldra tekna endurgjald til höfunda og rétthafa fyrir hvers konar hugverk, bókmenntir og listir eða listaverk, hvort sem um er að ræða afnot eða sölu, svo vísað sé til orðalags 3. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Slíkar tekjur eru hér eftir í umfjöllun þessari nefndar höfundatekjur. Nýju ákvæðin hrófla ekki við skattskyldu höfundatekna, þær munu eftir sem áður vera skattskyldar. Nýju ákvæðin breyta því hins vegar hvernig sumar, en ekki allar, höfundatekjur skuli flokkaðar og skattlagðar. Breytingarnar taka aðeins til tekna manna en ekki tekna lögaðila.

x

FLE blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.