FLE blaðið - 01.01.2020, Page 17
17FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020
• Þegar eftirlit hefur verið framkvæmt skal ársreikningaskrá
birta með rafrænum og aðgengilegum hætti niðurstöður
eftirlits ársins sem framkvæmt hefur verið.
Á síðustu árum hefur ársreikningaskrá gefið út minnisblað um
áhersluatriði í eftirliti sínu og eru þau hugsuð til umhugsunar fyrir
stjórnendur félaga sem og endurskoðendur eða skoðunarmenn
þeirra félaga sem falla undir gildissvið ársreikningalaga.
Áhersluatriðin taka mið af nýlegum breytingum laga og
reglugerða auk atriða sem upp hafa komið við eftirlit með
reikningsskilum á síðustu árum.
Ný reglugerð nr. 696/2019 um framsetningu og innihald
ársreikninga og samstæðureikninga leit dagsins ljós á liðnu ári
og gildir fyrir ársreikninga og samstæðureikninga frá 1. janúar
2019. Framsetning rekstrarreiknings og efnahagsreiknings
samkvæmt reglugerðinni byggir á tilskipun Evrópusambandsins
um ársreikninga félaga. Gert er ráð fyrir mikilli sérgreiningu
liða í bæði rekstrar- og efnahagsreikningi. Því er gott að hafa
í huga ákvæði reglugerðarinnar um óverulegar fjárhæðir en í
þeim tilvikum er heimilt að sleppa sérgreiningu liða í rekstrar-
eða efnahagsreikningi en sundurliða þá viðkomandi lið / liði í
skýringum eftir því sem ástæða er til.
Samkvæmt reglugerðinni er fjallað um skýringar með almennum
orðum, en í henni eru ekki settar fram beinar viðbótarkröfur
umfram kröfur ársreikningalaga. Það segir þó í reglugerðinni
að upplýsingar í skýringum skuli vera það ítarlegar að þær geri
notendum ársreiknings kleift að leggja mat á eðli og fjárhagsleg
áhrif viðskipta og annarra atburða á rekstur og efnahag félagsins
(samstæðunnar). Stjórnendur skulu leggja mat á mikilvægi og
hvaða upplýsingar eru viðeigandi til að tryggja að reikningsskilin
gefi glögga mynd samkvæmt skilgreiningu í 5. gr. laga um
ársreikninga. Þannig geti verið nauðsynlegt að birta ýtarlegri
sundurliðanir og skýringar en gerð er krafa um í lögum um
ársreikninga eða reglugerðinni.
Ársreikningar sem lenda í úrtaki eru almennt skoðaðir heilt yfir
hvort þeir séu í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og settra
reikningsskilareglna. Áhersluatriði sem sérstaklega verða tekin
fyrir vegna ársreikninga reikningsársins 2019 eru:
1. Skylda til að endurskoða félög yfir vissum
stærðarmörkum
a. Samkvæmt 3. mgr. 96. gr. laga um ársreikninga
eru þau félög sem falla undir gildissvið laganna
endurskoðunarskyld. Ekki er þó skylt að láta endurskoða
ársreikning félags skv. 1. mgr. 98. gr. laganna ef
félag er undir tveimur af þremur stærðarmörkum tvö
næstliðin reikningsár það er efnahagsreikningur undir
200 milljónum kr., hrein velta undir 400 milljónum kr.
og meðalfjöldi ársverka á fjárhagsári undir 50.
b. Þessi undanþága nær ekki til móðurfélags sem er skylt
að semja samstæðureikning.
c. Ef ársreikningur sem fer yfir þessi stærðarmörk
er ekki endurskoðaður verður honum hafnað hjá
ársreikningaskrá og gerð krafa um að endurskoðuðum
ársreikningi verði skilað.
2. Rétt skráning endurskoðenda eða skoðunarmanna
a. Til þess að endurskoðandi eða skoðunarmaður megi
árita ársreikning verður hann að hafa verið kosinn á
aðalfundi eða almennum félagsfundi og hann jafnframt
tilkynntur til fyrirtækjaskrár. Ársreikningaskrá kemur til
með að hafna ársreikningum ef annar endurskoðandi
eða skoðunarmaður en sá sem skráður er hjá
fyrirtækjaskrá staðfestir yfirferð sína á reikningsskilum
félagsins.
3. Skýrsla stjórnar
a. Í greinum 65 og 66 í lögum nr. 3/2006 um ársreikninga
koma fram helstu atriði sem þarf að upplýsa um í
skýrslu stjórnar.
b. Í reglugerð 696/2019 um framsetningu og innihald
ársreikninga og samstæðureikninga kemur fram að
taka skuli tillit til umfangs rekstrar, stærðar viðkomandi
félags og þess hversu margbrotin starfsemi félagsins
sé þegar verið er að leggja mat á hversu ítarlegar
upplýsingar skuli veita. Af þessu leiðir að meiri kröfur
eru gerðar til stærri og flóknari félaga en þeirra minni.
4. Ófjárhagsleg upplýsingagjöf
a. Ársreikningaskrá mun fylgjast sérstaklega með
að framsetning upplýsinga í skýrslum stjórna
endurskoðunarskyldra félaga sé í samræmi við ákvæði
laga. Á árinu 2016 var grein 66 d innleidd í lög um
ársreikninga að fyrirmynd tilskipunar frá ESB um
ófjárhagslega upplýsingagjöf. Samkvæmt greininni
er gerð ríkari lagaleg krafa um einingar tengdar
almannahagsmunum og móðurfélög stórra samstæðna
sem uppfylla tvö af þremur eftirfarandi skilyrðum ber að
greina frá ófjárhagslegum upplýsingum í ársreikningi:
a) heildareignir yfir 3 milljarða kr. b) hrein velta yfir 6
milljarða kr. og c) meðalfjöldi ársverka yfir 250.
5. Upplýsingagjöf vegna eignarhalds og kaupa og sölu
eigin hluta
a. Veita skal upplýsingar bæði í skýrslu stjórnar og í
skýringarhluta ársreiknings. Í skýrslu stjórnar skal koma
fram fjöldi og nafnverð eigin hluta og einnig upplýsingar
um ástæðu þess ef félagið aflaði sér eða lét af hendi
eigin hluti á reikningsárinu. Einnig skal upplýsa um
endurgjald hlutanna.
b. Í skýringum skal upplýsa um sömu atriði og í skýrslu
og til viðbótar skal koma fram hlutfall eigin hluta af
heildarhlutum.
c. Sömu upplýsingar skal veita ef tekið hefur verið veð í
eigin hlutum eða dótturfélag hefur eignast eða látið af
hendi hluti í móðurfélagi á reikningsárinu.