FLE blaðið - 01.01.2020, Page 19

FLE blaðið - 01.01.2020, Page 19
19FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 TILMÆLI Nefndin telur að óvissa sé um lagalegt gildi alþjóðlegra endurskoðunarstaðla og því nauðsynlegt að efnahags- og viðskiptaráðuneyti kanni hvort þeir hafi verið innleiddir með fullnægjandi hætti. Ástæða þessarar óvissu snýr einkum að þýðingu, skuldbindingargildi og formlegri birtingu staðlanna“. Það er skemmst frá að segja, að umrædd könnun var aldrei framkvæmd. Þann 1. janúar 2009 gengu í gildi ný lög um endurskoðendur á Íslandi – nánar tiltekið lög nr. 79/2008. Undirbúningur laganna hafði staðið yfir um nokkuð langt skeið og því hefur verið haldið fram, að þess hafi verið vandlega gætt að enginn úr hópi einyrkja í endurskoðun kæmi að undirbúningnum, enda kom á daginn að eftir setningu laganna virtist sem þeim hópi væri nánast gert ókleift að sinna sínu fagi – upp skyldi taka samstundis alþjóðlega endurskoðunarstaðla sem kölluðu á háskólanám í 4-5 ár. Engin „sólarlagsákvæði“ virtust vera fyrir eldri endurskoðendur. Við nánari skoðun reyndist þó eftirfarandi að finna í 9. gr. laganna: „Endurskoðandi skal rækja störf sín í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og alþjóðlega staðla um gæðaeftirlit sem teknir hafa verið upp í íslenskan rétt, sbr. 31. gr.“ Síðan kemur í bráðabirgðaákvæði II: „Þar til alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafa verið teknir upp í íslenskan rétt, skal endurskoðun skv. 9. gr. fara eftir góðri endurskoðunarvenju“. Varla hefði þetta ákvæði verið sett inn nema eitthvað væri óklárt í grundvelli að framkvæmd laganna. Deila þessi hefur frá upphafi, í grunninn, snúist um óvissu um lagalegt gildi hinna alþjóðlegu endurskoðunarstaðla á Íslandi GILDI ALÞJÓÐLEGRA ENDURSKOÐUNARSTAÐLA Á ÍSLANDI FRÁSÖGN AF DEILU VIÐ ENDURSKOÐENDARÁÐ Guðmundur Jóelsson var löggiltur endurskoðandi frá 1975 til 2019 en er nú hættur störfum Þann 31. ágúst 2010 skipaði viðskiptaráðherra nefnd, sem starfaði undir forystu Sigurðar Þórðarsonar fv. ríkisendurskoðanda. Í skipunarbréfi nefndarinnar var henni m.a. falið að fara heildstætt yfir lög og reglur sem gilda um endurskoðendur, skoða lagaumhverfi í helstu nágrannaríkjum, skoða hvað hefði mátt betur fara í aðdraganda hruns viðskiptabankanna varðandi atriði sem lúta að endurskoðendum omfl. Nefndin skilaði af sér viðamikilli 60 bls. skýrslu í janúar 2011. Í kafla 4.1.2. um endurskoðunarstaðla á bls. 18 er m.a. eftirfarandi að finna: „Þrátt fyrir bráðabirgðaákvæði í lögum um að í góðri endurskoðunarvenju felist að endurskoðað sé í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, þá hafa staðlarnir hvorki verið þýddir né formlega samþykktir af Félagi löggiltra endurskoðenda sem íslenskir endurskoðunarstaðlar. Spurningar hafa vaknað um hvort ekki sé nauðsynlegt, til þess að tryggja beitingu íþyngjandi viðurlaga vegna brota á stöðlum, að gefa þá út í formi stjórnvaldsfyrirmæla sem birt væru lögum samkvæmt.

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.