FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 31

FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 31
31FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 INNGANGUR Á undanförnum árum hefur af og til sprottið fram gagnrýni á gæði og síðbúin skil ársreikninga íslenskra fyrirtækja. Þrátt fyrir það hefur lítið verið um rannsóknir eða greiningar á gæðum íslenskra ársreikninga til að byggja undir umræðuna. Einn hluti af stærri rannsókn sem ég hef unnið að við Háskólann í Reykjavík er að fylla aðeins upp í þetta tómarúm og skoða hversu vel ársreikningar f y lg ja skýr ingarkröfum ársreikningalaga. Gerðar hafa verið fjölmargar erlendar rannsóknir á fylgni ársreikninga við skýringarkröfur sem ég hef haft til hliðsjónar við mína rannsókn. Þessar rannsóknir eiga það flestar sameiginlegt að kanna hversu vel ársreikningar skráðra félaga fylgja alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS). Niðurstöður þeirra rannsókna hafa sýnt að meðaltali 72% - 96% fylgni við skýringarákvæði IFRS í heild sinni eða einstaka staðla (Glaum and Street, 2003; Popova et al., 2013; Glaum et al., 2014). Mín rannsókn beinist hins vegar að ársreikningum óskráðra félaga sem gera ársreikninga í samræmi við ársreikningalögin. Þrátt fyrir talsverða leit hef ég ekki fundið sambærilega erlenda rannsókn með áherslu á óskráð félög sem gera upp í samræmi við staðbundin ársreikningalög. Þetta er því að ég best veit fyrsta rannsóknin þar sem skoðuð er fylgni við ársreikningalögin þar sem lítil og meðalstór félög eru með í úrtakinu. Það verður að teljast nokkuð áhugavert enda flokkast 99% fyrirtækja á Evrópska efnahagssvæðinu undir það að vera lítil eða meðalstór. Í rannsókninni er ekki einungis skoðuð fylgni við skýringarkröfur heldur einnig tengsl ýmissa þátta við fylgnina. Dæmi um það eru t.d. hvaða áhrif stærð fyrirtækis, áritunardagur, endurskoðun, fjárhagsstaða o.s.frv. hefur á fylgni við skýringarkröfur. Tilgangurinn með rannsókninni er því að varpa RANNSÓKN Á GÆÐUM ÍSLENSKRA ÁRSREIKNINGA ER Í LAGI MEÐ ÞÁ? Árni Claessen, endurskoðandi hjá KPMG Full þörf er á að innleiða stafrænt eftirlitsferli með ársreikningum en eins og staðan er núna yfirfara starfsmenn embættisins einungis örlítið brot af þeim ársreikningum sem skilað er inn

x

FLE blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.