Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 47
stuðningi sínum við málstað íslands í landhelgisdeil-
unni við brezka togaraútgerðarmenn.
Heitir þingið á ríkisstjórn Islands að hvika í engu í
landhelgismálinu, hvaða ofbeldisaðgerðum sem brezkir
útgerðarmenn kunna að beita, en gera þegar ráðstaf-
anir til vinnslu togaraafla okkar innanlands, meðan á
deilunni stendur.
Jafnframt leiti ríkisstjórnin aðstoðar Sameinuðu
þjóðanna, ef nauðsynlegt þykir, til þess að viðskipta-
samningar íslands við Bretland séu hafðir í heiðri og
landhelgi íslands virt eins og hún hefur verið ákveðin,
þar til ákvörðun hennar hefði þá verið hnekkt fyrir
alþjóðadómstólnum í Haag.
Tillagan flutt af Hannibal Valdimarssyni, Guðmundi
G. Kristjánssyni og 15 öðrum fulltrúum af Vestfjörðum.
Um að skip verði í heimahöfn á sjómannadaginn og
jólum.
23. þing Alþýðusambands íslands vítir það að margir
útgerðarmenn virðast kappkosta að hafa skip sín
fjarri heimahöfn á sjómannadaginn.
Skorar þingið á forráðamenn skipa cg þá sérstaklega
skipstjóra að gera sitt ýtrasta til að sem allra flest skip
verði í heimahöfnum á sjómannadaginn og á jólunum.
Tillagan flutt af Tryggva Helgasyni, Sigfúsi Bjarna-
syni o. fl.
Um frádrátt af tekjurn við útreikning skatta vegna
kaupa á hlífðarfötum.
23. þing Alþýðusambands Islands skorar á Alþingi
það, er nú situr að samþykkja frumvarp Jónasar Arna-
45