Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 49
ing þeirra hækkað að sama skapi, en það verður að
teljast óeðlilegt að afkoma seljandans sé betri eftir því
sem varan er dýrari í innkaupi, og þess vegna má búast
við að full tilhneiging innflytjandans verði til að kaupa
sem dýrasta vöru, þá lítur þingið svo á, að hverfa beri
frá % álagningunni, og álagning verði miðuð við þyngd,
mál eða hlut.
Urn verzlunarbann á brezkum vörum.
23. þing Alþýðusambands Islands skorar á:
1. Allan almenning að kaupa ekki brezkar vörur
meðan löndunarbannið er í gildi.
2. Kaupfélög, kaupmenn og aðra innflytjendur að hætta
að verzla með brezkar vörur og auglýsa það í verzl-
unum sínum.
FRÁ LANDBÚNAÐARNEFND.
Um nýbýli og byggðahverfi, áburðarverksmiðju og inn-
fiutning tækja og véla.
23. þing A. S. I. leggur áherzlu á það, að jafnan séu
nægar neyzluvörur frá landbúnaðinum á markaðinum
og að landbúnaðinum séu sköpuð skilyrði til þess að
hann sé jafnan eftirsóttur atvinnuvegur. Til þess að
ná þessu marki, vill þingið vísa til ályktunar síðasta
þings í þessum málum.
Um áburðarverksmiðju.
Þingið fagnar því að hafin er bygging áburðarverk-
smiðjunnar og telur hana þýðingarmikið spor til að
örva æskilega þróun landbúnaðarins. Ennfremur leggur
þingið áherzlu á, að landbúnaðinum sé séð fyrir inn-
47