Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 2

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 2
2 Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. 3 Gunnar fæddist í Reykjavík 13. desember 1951. Sonur Dr Med Bjarna Oddssonar læknis (1907-1953) og Ástu Júlíu Árnadóttur (1914-1997). Móðir hans ólst upp frá níu til sextán ára aldurs í Norður Dakota í Bandaríkjun- um en um hana og fjölskyldu hennar hefur verið fjallað í sex bókum og má þar nefna sögulegu skáldsöguna „Höll minninganna“ eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og Loftklukkuna eftir Pál Benediktsson. Gunnar á þrjá eldri bæður, Odd, sem er læknir og fæddur 1935 en Örn (1937-2006) og Halldór (1940-2011) eru báðir látnir. Gunnar Bjarnason forstöðumaður jarðefnadeildar lét af störfum hjá Vegagerðinni nýverið eftir rúmlega hálfrar aldar starf. Hér verður rætt við Gunnar um uppvaxtarár hans og skólagöngu, rifjaðar upp sögur úr brúarvinnunni þar sem ýmislegt var brallað og farið yfir helstu störf hans og rannsóknir. „Pabbi var í framhaldsnámi í læknisfræði fyrir stríð í Danmörku og Þýskalandi og varð fjölskyldan innlyksa erlendis öll stríðsárin. Pabbi Bjarni lést í bílslysi á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar haustið 1953, sem var að sjálfsögðu mikið áfall fyrir okkur öll,“ lýsir Gunnar en móðir hans giftist síðar Dr Med Jóhannesi Björnssyni lækni (1907-1966) og Gunnar eignaðist þar með þrjú stjúpsystkini; Valdimar, Björn og Hildi. Jóhannes lést langt fyrir aldur fram. Toppurinn að byggja Borgarfjarðarbrú ↑ Gunnar Bjarnason byrjaði hjá Vegagerðinni fyrst sem unglingur í brúavinnuflokki en varð síðar forstöðumaður jarðefnadeildar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.