Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 12

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 12
12 Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. 13 Kvíá Verkið við Kvíá í Austur-Skaftafellssýslu fólst í byggingu nýrrar brúar, rifi á gömlu brúnni og gerð um eins km langs vegar beggja megin brúar auk tengi- vegar að áningarstað ofan vegar og vestan Kvíár. Auk þess var gerður leiðigarður að brúnni. Brúin er í nýrri veglínu, 35 m suðaustan gömlu brúarinnar. Yfirbygging er samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í einu 32 m löngu hafi. Heildarbreidd brúarinnar er 10 m, þar af er akbrautin 9 m. Landstöpl- ar eru steyptir og grundaðir á 12 m löngum boruðum ↑ Nýja brúin yfir Kvíá í forgrunni. Sú gamla í bakgrunni. Mynd: Ístak ↓ Kvíá, gamla brúin. stálstaurum, samtals 26 stk. undir hvorn landstöpul. Stálstaurar eru innfylltir af steypu eftir borun. Verkinu átti að ljúka í nóvember 2020 en vegna veðurs var ekki hægt að ljúka frágangi og verður það klárað fyrir sumarið. Umferð hefur þó verið hleypt á brúna. Gamla brúin var stálbitabrú með steyptu gólfi á steyptum stöplum alls 38,3 m að lengd. Hún hefur verið rifin.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.