Ský - 01.04.2003, Síða 28
í hnotskurn...
LINDA BJÖRK
Lekker ætti að vera millinafn Lindu Bjarkar Árnadóttur,
aðalfatahönnuðar SVO og kennara við arkitektúr- og hönn-
unardeild Listaháskóla íslands. Allt sem hún gerir er fallegt,
flott og framsækið. Lífið hennar líka. þlg
Hvað eru hæfileikar í þínum huga?
Þegar fólk hefur hæfileika til þess
aö nýta hæfileika sína.
Hvað kanntu að elda upp á tíu?
Ég get eldað fiskisúpu upp á 7, en
annars elda ég sjaldan.
Hvar ertu hamingjusömust?
Þegar ég hef frelsi til þess að
henda frá mér öllum hugmyndum,
fortíð og framtíð og get verið í
núinu.
Hvaða sms-i hendirðu aldrei úr
handsímanum þínum?
Ég á þar nokkrar fallegar ástar-
játningar frá manninum mínum
sem ég vil eiga.
Hvert er uppáhaldsblómið þitt?
Fíflarnir þeg-
ar þeir
blómstra
Skilning fólks
á því að það þurfa ekki allir að
vera og lifa eins.
fyrst á vorin.
Hvað þarf
heimurinn til
að batna?
Af hvaða karlmönnum ertu ást-
fangin þessa stundina?
Syni mínum
Styr og mann-
inum mínurm
Frey.
Ilmvatnið
Mér finnst
engin ilmvötn
góð og nota
þau ekki. Það eru helst náttúru-
ilmir og olíur sem ég nota, og þá
fyrst og fremst fyrir sjálfa mig.
Áður en ég fer í partí þá.....vil ég
líta vel út, í samræmi við það sem
ég vil vera þá stundina.
Hver er mesti tískuhönnuður
heims?
Karl Lagerfeld.
Ekki vegna þess
að hann sé að
gera góða hluti
núna, heldur
vegna þess að
hann er mega
karakter.
Hvað er það fallegasta sem hægt
er að segja við þig? Viltu meira?
Hver er eftirlætisstaðurinn þinn í
Reykjavík?
Barinn Sirkus stendur upp úr.
Hvaða bók lastu síðast?
Cromophobia
eftir David
Batchelor
sem er um
litafælni hins
vestræna
heims.
Hvaða hlutur gerir hvern stað að
„heima“ fyrir þig? Ég þarf mjög lít-
ið og get búið hvar sem er. Það
myndi helst vera tannbursti.
Hvaða flík klæðir alla, burtséð frá
hæð og vaxtalagi?
Sokkar.
Hvar leitarðu gleðinnar?
Hjá sjálfri mér. Hvort ég sé glöð
eða hamingjusöm er alltaf mín eig-
in ákvörðun.
Hvaða kjól
vildirðu óska
að þú hefðir
hannað?
Kjólinn sem
Venus frá Míló
var ekkií á
mynd Botti-
cellis.
Uppáhalds-
skartgripurinn
minn? Geng
ekki með
skartgripi.
Er meira fyrir
aðalatriði en aukaatriði.
Besti vinur minn og af hverju?
Ég sjálf, því ég er yfirleitt til staðar.