Ský - 01.04.2003, Blaðsíða 35

Ský - 01.04.2003, Blaðsíða 35
erfitt meö aö neita. Hins vegar er ógjörningur að koma leikhús- inu fyrir á sama tíma og maður er aö vinna við kvikmyndir. Ég ver helmingi tíma míns í útlöndum, svo þaö er vonlaust að á láta þaö ganga saman meðan sýningakerfið er eins og það er á íslandi. það þyrfti að breyta því og sýna verkin þéttar. Líkt og í nágrannalöndunum. Lifir þú eftirsóknarverðu lífi? Mér finnst ailavega gaman að vera eg núna. Eitt af því sem ég var þekktur fyrir hefur minnkað í mínu lífi og vegna mikils álags, og tíðra ferða til útlanda, reyni ég að njóta allra minna frístunda í faðmi fjölskyldunnar. Við keyptum okk- nr bóndabæ í Skagafirðinum þar sem við unum okkur í friði og spekt. Ég á fimm frábær börn og er loksins orðinn nógu þroskaður til að njóta þeirra. Er orðinn miklu færari en áður að njóta lífsins. Finnst þér þú lánsamur maður? Já, ég vakna oft hugsandi einmitt Það. En stundum, í miðju kafi, gleymir maður að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur. Ég vinn við það sem mér finnst skemmtilegast í lífinu og það er ekki einu sinni áreynsla fyrir mig. Ég er sívinnandi, en það er mér lífsstíll frekar en vinna. Hvert er leyndarmálið að velgengni þinni? Það er ekkert leyndar- mál. Velgengni mín liggur í verkum mínum. „Uitaskuld þarf að styðja uið bakið á landsbyggðinni, en það uerður að hætta að búa til heimatilbúin uerkefni á síðustu stundu; setja alla bændur í refarækt, setja upp rafskautauerksmiðju í þessu þorpi og stálrörauerksmiðju í þuí næsta. Þessi pólitík hefur uerið reynd til hlítar í Austur-Európu.” Af hverju er ávallt fremur tæpitungulaust sex í myndunum þínum? Vegna þess að ég er samkvæmur sjálfum mér. Finnst kynlíf svo hluti lífs okkar og ekkert til að skammast sín fýrir eða fela. Kynlíf sínar fallegu og Ijótu hliðar, bæði blíóar og harðar, en ég hugsa aldrei um það sem eitthvað sem trekkir að áhorfendur. Ég vil ein- faldiega nálgast samskipti kynjanna á þennan hátt því kynlíf er órjúfanlegt frá öllum ástarsamböndum. Og öfugt við flesta leikstjóra er ég er ekki feiminn við að sýna karlana nakta beggja megin. Sástu þessa velgengni fyrir sem lítill strákur? Já, svei mér þá. Trúa ekki allir á sjálfan sig? Nei, nei. Aldeilis ekki. Ekki einu sinni innst inni? Ég var ágætur að teikna og skrifaði sögur. Hins vegar lokaði ég á teiknigáfuna mjög ungur. Var tekinn afsíðis í frímínútunum og neyddur til að teikna mynd fyrir húsvörðinn, vegna þess að ég var sonur pabba míns og hann vildi eignast mynd eftír Baltasar. Svo sat ég og svitnaði og teiknaði hús og sól. Ég man alltaf eftir þessu því ég skammaðist mín svo fyrir myndina sem hann fékk; fannst ég ekki standast væntingar. Ertu viðkvæmur fyrir gagnrýni? Já, ég er mjög viðkvæmur og get orðið virkilega sár. Eins og þegar menn telja mig tækifærissinna °g gagnrýna út frá slíkri afstöðu. Það sárnar mér rosalega. Á móti kemur að maður getur ekki gert ráð fyrir því að fólk horfi uðurn augum á það sem maður gerir. Ég er bara þakklátur ef menn bera til þess gæfu að geta metið mín verk burtséð frá húsinu mínu eða bílnum. Ég hef einfaldlega metnað fyrir því að reka fyrirtækíð mitt vel og skila hagnaði af rekstrinum. Peningar hafa hins vegar aldrei verið mér drifkraftur. Ég vakna aldrei á morgnana til aó hugsa um hvernig ég geti grætt sem mest, en vakna hins iðulega til að hugsa hvernig ég geti gert betri kvikmyndir. MEIRI íslendingur en margir íslendingar Hvers konar drengur og unglingur varstu? Ég hef aldrei verið hóp- sál og af þeim sökum kannski aldrei verið sá vinsælasti heldur. Var reyndar stundum í slagtogi með gengjum en bíð þess varla bæt-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.