Ský - 01.04.2003, Blaðsíða 55
Ljósmyndir: PÁLL STEFÁNSSON
AL FRESCO*
Á vorin streyma íslendingar út úr
húsum sínum, það gerum við líka í
þessum blaðauka og skoðum ytra
byrði híbýla okkar; viðhald, nýbygg-
ingar og endurbætur. Hvaða
möguleikar eru til dæmis í klæðn-
ingum utanhúss? Er það viður,
steinn, málmur eða jafnvel bara ný
umferð af málningu? Og hvaða litir
koma þá til álita? Er kannski kom-
inn tími til að endurnýja svalahand-
riðið, þakjárnið eða rennurnar? Og
hvað um veröndina, á að setja hell-
ur á hana, eða ætti hún kannski að
vera úr tré? Þetta eru dæmi um
spurningar sem við veltum upp og
leitum svara við hjá fagmönnum
um hönnun og framkvæmdir. En
þótt meginfókusinn sé utanhúss
erum við ekki eingöngu undir ber-
um himni heldur bregðum okkur
einnig á stærstu og virtustu hús-
gagnasýningu heims Salone del
Moblle, sem haldin var í Mílanó í
vor.
*ftalska, úti undir berum himni.
ALLIR REGNBOGANS...
íslensk hús eru þekkt fyrir mikla litadýrð.
En henta allir litir íslenskri birtu og veðri? Ský spurði sérfræðingana álits.
Elín Kjartansdóttir, arkitekt
„Mér finnast pastellitir vonlausir á íslandi,
þaö hefur eitthvaö með birtuna að gera.
Sjáöu til dæmis Bryggjuhverfið eða fáðu þér
bíltúr til Grindavíkur og sjáðu alla litadýrðina
þar, mér finnst þeir flestir skelfilegir. Mér
finnast frumlitirnir, gulur, rauður, grænn og
blár ganga yfirleitt miklu betur hér. Maður
sér glögglega á gömlu bárujárnshúsunum
hvað mörg þeirra eru fín t sterkum litum. Stð-
an er hvítur alltaf klassíkur og gráir tónar
líka. Jarðarlitir ganga líka yfirleitt vel á ís-
landi. Hvttur er mikið ofan á þessa dagana,
bæði í utan- og innanhúshönnun."
Thelma Björk Frióriksdóttir, hönnuður
„Það er erfitt að segja að einhver einn litur
sé í tísku enda veróur aö skoöa formið á hús-
inu og byggingartíma. Hvttt er alltaf t tísku,
einnig grátt, og báöir litirnir henta veðurfar-
inu hér vel. Svartur, bæsaöur viöur er mjög
fallegur og við mættum sjá meira af honum,
ásamt þvt að blanda rauðum og bláum litum
við hvtt hús.”
Vigfús Gísiason, sölustjóri hjá Hörpu-Sjöfn
„Það sem er vinsælt þessa stundina eru þeir
litir sem finnast t náttúrunni. Litir sem draga
dám af sandi, fjallshlíð, lyngi og alveg yfir í
Ijósa húðliti. í erlendum litakortum heita
sumir þeirra eftir dýrahúöum. Sterkir litir eru
minna teknir núna, enda finnst mér persónu-
lega að ef liturinn á aö vera lífseigur þá á
hann að fyrirfinnast í náttúrunni.”