Ský - 01.04.2003, Blaðsíða 82
nresiro-
80
'|F « § ■ ' i Í n .H "■ | ' “ 'sZí _ C J' -
Stúlkurnar í Gjörningaklúbbnum fara ótroðnar slóðir. Pessar ungu listakonur vinna í
alls kyns miðlum: leiklist, myndböndum og innsetningum og trúa á mátt samstarfsins.
Anna Margrét Björnsson hitti þær Sigrúnu Hrólfsdóttur, Jóní Jónsdóttur og Eirúnu
Sigurðardóttur og spurði hvaða gjörning þær hefðu viljað láta sér detta í hug.
„Við vildum að við heföum haft sömu sýn og Stockhausen þegar
hann sagði að 11. september hefði verið mesti gjörningur allra tíma.
Það er mjög flott að sjá hlutina með þessu hugarfari," segir Sigrún
Hrólfsdóttir, full sannfæringar. Það er kannski ekkert skrýtið að
mottó Gjörningaklúbbsins er: „Horfðu í augun á þínum innri ótta.”
„Ef maður fer að hugsa um hlutina á þennan hátt, þá er 11. sept-
ember auðvitað eitthvað sem aldrei hafði gerst áður og hafði gífur-
leg áhrif á heimsbyggðina. Það var svo mikill kraftur í þessu, Imynd-
unarafl fólks fór af stað um allan heim. Orðið terrorismi öðlaðist nýja
merkingu. Þaö er búið að búa til svo mikla hraeðslu. Fólk hugsar
með sér: 'Hvað geta þeir búið til næst, hvað dettur þeim í hug að
ráöast á næst?’ Allir eru farnir að ímynda sér það versta, og verða
í raun litlir terroristar í huganum. Við erum auðvitað ekki að hvetja
til terrorisma. Það sem við erum að segja er að við dáumst að manni
eins og Stockhausen sem nær að sjá hlutina - í þessu tilfelli hræði-
lega hluti - í algerlega nýju Ijósi. Hann hefur líka búið til ýmislegt
sem við dáumst mikið að, eins og Tónverk fyrir sjö þyriur sem hann
samdi um atburðina 11. september.’’
Jóní bætir við að það megi alveg líkja 11. september við náttúru-
hamfarir. „Mér persónulega finnst náttúran sjálf eiga heiðurinn af
bestu gjörningum allra tíma. Hún skapar hamfarir, og nú er hún búin
að skapa þessa nýju SARS veiki,” segir Jóní full aðdáunar.
Þær stúlkur taka það fram að þótt þær séu auðvitað undir áhrifum
ýmissa listamanna séu þær þó aðallega undir áhrifum hvorfrá annar-
ri. „Takmark listamanna er auðvitað að gera hluti sem enginn ann-
ar hefur gert áður.”
Það er nóg að gera hjá Gjörningaklúbbnum á næstunni. Þær eru að
vinna að sýningu í Árhúsum, sem er gjörningur með mótorhjólum og
lúðrasveit, og nýtt útilistaverk, Dýrmæti, verður afhjúpað við Borgar-
holtsskóla í maí. „Við erum líka að vinna útilistaverk fýrir Landsvirkjun.
Svo erum við að undirbúa nýja sýningu í Nýló sem verður opnuð 5. júlí.”
En hvernig er að vinna þrjár saman? Kemur aldrei upp ágreiningur?
„Jú, það er alltaf ágreiningur,” segja þær í kór og hlæja. Er þetta þá
stundum Spice Girls fílingurinn? „Já, við vorum fyrst fjórar en nú er
ein hætt,” segir Eirún. „En ágreiningurinn verður ekki gefinn upp,
ekki frekar en hjá Spice Girls. Hjá okkur gerist allt bak við luktar dyr.”
Sigrún bætir við dularfull á svip: „í reykfylltum bakherbergjum.”
Hægt er að fá nánari upplýsingar um Gjörningaklúbbinn eða The
lcelandic Love Corporation eins og þær heita á engilsaxnesku, á
www.ilc.is