Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2022, Side 203

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2022, Side 203
Þetta var ekki rannsókn á tilteknum málbreytingum, þó að ég skoðaði einhver dæmi til að styðja mál mitt. Þegar ég hins vegar fékk tækifæri til að vinna með gögnin sem var safnað í RAUN-rannsókninni og bæta þeim við eldri gögn, RÍN og rannsókn Björns, var ég komin með efnivið til að framkvæma það sem mig hafði langað til að gera þarna upp úr 1990 — að tvinna saman þessi ólíku sjónar- horn á mál þannig að þau ættu samleið í rannsókn á tilteknum málbreytingum. Svar við spurningu ii): Það er rétt, sem þú nefndir, að ekki er fjallað um val á tilbrigðapörum í löngu máli, en umfjöllunin er þó strax í inngangi sem gefur henni ákveðið vægi. Við þetta val hafði ég í huga að ég vildi skoða tvö staðbundin afbrigði hjá sama fólki. Með því að hafa undir bæði harðmæli og raddaðan framburð (og þá um leið linmæli og óraddaðan framburð) hjá sama fólki má segja að félagslegum þáttum sem taka þarf með í reikninginn fækki. Þó að afbrigðin séu tvö er æviskeiðið aðeins eitt. Í ritgerðinni kemur fram að notkun óraddaðs framburðar eykst mikið milli rannsóknar Björns Guðfinnssonar og RÍN-rannsóknarinnar, en notkun lin- mælis mun minna. Þar sem um sama úrtak er að ræða er til dæmis hægt að útiloka að það stafi af því að sumir málhafar hafi dvalið meira en aðrir á höfuðborgar - svæðinu, eða annars staðar utan Norðurlands. Þessi tvö afbrigði eru rannsökuð hjá sama úrtaki og því er þessi óvissuþáttur ekki fyrir hendi. Þar sem ég hafði áhuga á því að kanna hvort málfræðilegur munur á til- brigðapörum gæti haft áhrif á útbreiðslumöguleika þeirra og útbreiðsluhraða vildi ég hafa undir pör sem væru að talsverðu marki ólík að þessu leyti. Það er ekki alltaf sams konar breyting á málkerfinu sem felst í því að breyta framburðinum. Segja má að breytingin frá rödduðum framburði yfir í óraddaðan feli í sér „út víkkun“ afröddunarreglunnar. Hún var fyrir hendi í málkerfinu en með tileinkun óradd - aðs framburðar nær hún til fleiri hljóðasambanda en áður. Breyt ingin frá hv-fram- burði til kv-framburðar er hins vegar einhvers konar breyting innan orðasafnsins. Tilbrigðapörin sem ég valdi eru öll að einhverju marki ólík og gáfu því tækifæri til að kanna hvort og þá hvernig málfræðilegur munur af þessu tagi kæmi fram í ævibreytingum. Loks fannst mér kostur að tíðni allra landshlutabundnu afbrigðanna hefði verið tiltölulega há í rannsókn Björns. Það er ekki víst að stutt og langt komnar málbreytingar séu sambærilegar. Þegar ég hafði valið afbrigði og fór að greina gögn Björns kom reyndar í ljós að tíðnin var líkari en ég hélt í upphafi. Öll af - brigðin fengu yfir 190 í meðaleinkunn á kjarnasvæðum sínum í rannsókn Björns, sem felur í sér að þátttakendur hafi notað þau í yfir 90% tilvika. Greining Björns sjálfs hafði gefið til kynna meiri mun. Það freistaði mín að hafa vestfirskan einhljóðaframburð með í rannsókninni, en þá hefði ég ekki haft tvö afbrigði frá sama svæði, hjá sama fólki. Þar að auki fannst mér eiginlega að ég hefði nóg við að vera með þau fjögur sem ég valdi. Svör við andmælum Finns Friðrikssonar 203
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.