Heilbrigt líf - 01.12.1958, Side 12
mestu umtali og óhug liin siðari ár, en það er geislun
frá ögnum eða ryki, sem myndast við kjarnaspreng-
ingar. Kvíðinn hefur legið sem mara á mannkyninu allt
frá því að fyrsta kjarnasprengjan var sprengd, á sönd-
um Alamogordo í Nýju Mexíkó, 16. júlí 1945.
Sprengingunum fylgir geislavirkt ryk, sem nefna mætti
geislaryk (radioactive fallout). Magn þess fer eftir gerð
og stærð sprengjunnar. Við vetnissprenginuna á Bikini-
eyju vorið 1954 dreifðist rykið um 20.000 km2 svæði.
Það var stór sprengja, eða 15 megatonn1) (miðað við
TNT sprengiefni), en venjulegar kjarnasprengjur reikn-
ast í þúsundum tonna. Rykið getur verið sýnilegt og
fallið niður, sem fnígert gráleitt duft, eins og það, sem
féll á japönsku fiskiskipin við fyrrnefnda sprengingu. En
ósýnilegt ryk getur einnig dreifzt yfir stór svæði og
geislavirkar agnir mengað láð og lög, án þess að þeirra
verði vart. Maðurinn er ekki búinn neinum skynfærum,
sem greint gætu geislana, svo að hann er varnarlaus gegn
iiættunni, sem af þeim stafar.
1 nágrenni við sprengjustað er geislahættan mjög mikil.
Auk loftþrýstings og hitabylgju, sem hvort fyrir sið geta
valdið hana í margra kílómetra fjarlægð, fylgja kjarna-
sprengjum ósýnisgeislar, og getur sú geislun verið lífs-
liættuleg eða banvæn nokkra kílómetra frá miðju
sprengjusvæðis, mismunandi eftir gerð og stærð sprengj-
unnar. Geislarykið fellur sumpart niður á það landsvæði,
sem næst er sprengjustað, en berzt hins vegar með vind-
um til fjarlægra svæða, og fer það því mjög eftir veður-
fari og úrkomu, hvar það fellur til jarðar. Við vetnis-
kemur niður á mörgum árum, en á næstu mánuðum
við minni kjarnasprengjur. Mælingar undanfarinna ára
liafa sýnt, að meira eða minna af geislavirku ryki hefur
fallið á allan hnöttinn, en mest í tempruðu beltunum.
Vðbótargeislun, sem mannkynið verður fyrir af þessum
1) Megatonn = milljón tonn.
10
Heilbrigt líf