Heilbrigt líf - 01.12.1958, Page 21
fram á, að kostnaður við flúorblöndun sé mun minni en
sá kostnaður sem sparast við það, að færri tennur þarfn-
ast viðgerðar eftir en áður.
Stofnkostnaður við flúorblöndun er sjálfsagt mismikill
eftir þvi hvernig aðstæður eru við vatnsból, iive mikil
vatnsnotkunin er o. s. frv., en sjálf blöndunartækin munu
ekki vera sérlega dýr. Tæki fyrir litla vatnsveitu munu
fáanleg fyrir minna en 1000 dollara, en stærri tæki munu
kosta nokkur þúsund. Ilér þyrfti væntanlega að reisa
sérstakt hús fyrir tækin. Sums staðar i Ameríku liefur
verið gert ráð fyrir að árlegur kostnaður verði um 4—5
eða 10—14 cent á mann á ári, eftir því bvaða flúorsalt
er notað, en hér á landi yrði kostnaðurinn sennilega meiri.
Með hliðsjón af þeirri reynslu, sem hefur fengizt ann-
ars staðar, virðist full ástæða til að fara að taka þetta
mál til athugunar hér á landi. Af samanburði á tíðni tann-
skemmda hér og á sem flestum af þeim stöðum, þar sem
flúorblöndun hefur verið framkvæmd að undangenginni
tannskoðun — og þar sem árangur er kunnur—mundi fást
frekari vísbending um Iivers árangurs mætti vænta. En
sæmilega nákvæma kostnaðaráætlun ætti að vera auðvelt
að gera.
Heilbrigt líf
19