Heilbrigt líf - 01.12.1958, Page 33
Ef um fullorðinn er að ræða, ber að blása duglega
um 12 andardrætti á mínútu. Ef um barn er að ræða,
ber að anda tiltölulega grunnt eftir stærð barnsins,
eða um 20 sinnum á mínútu.
4. Ef ekki fást loftskipti, ber að athuga stöðu höfuðs-
ins og kjálkans á ný (1. eða 2. mynd og 3. mynd).
Ef allt kemur fyrir ekki, ber að snúa hinum sjúka
snarlega á hliðina og slá nokkur högg milli herða-
blaðanna í þeirri von að losna við aðskotahluti.
Rennið fingrunum á ný gegnum munn iiins sjúka
til að fjarlægja það, sem fvrir kann að vera. (7. mynd).
7. MYND
6. MYND
Þeir, sem síður vilja snertingu við hinn sjúka, geta hald-
ið klút yfir munni eða nefi lians og andað gegnum ldút-
inn. Ilann liindrar lilið loftrásina.
Blástur í munn hvítvoðunga eða smábarna.
Ef eitthvað er sjáanlegt í munni, ber að fjarlægja það
fljótlega á þann liátt, sem fyrr er lýst.
1. Leggið barnið á bakið og þrýstið fingrum beggja
lianda undir kjálkann aftanvert, þannig, að liann
standi út (8. mynd).
2. Leggið munninn yfir munn og nef barnsins, þannig
að sem minnst geti lekið fram lijá, og andið stutt-
um blæstri (munnblæstri, 9. mynd) um 20 andar-
drætti á mínútu.
Heilbrigt líf
31