Heilbrigt líf - 01.12.1958, Page 40
Heilbrigðisstofnun Sameinuðu
þjóðanna (WHO)
10 ára afmæli.
Þann 7. apríl 1958 eru 10 ár liðin frá því WHO tók til
starfa. Á þessu tímabili hefur verið skipulagt og unnið
geysimikið og víðtækt starf, sem þegar hefur borið mik-
inn og góðan árangur. Heilbrigðisstofnunin hefur í þjón-
ustu sinni fjölda hinna færustu sérfræðinga, sem starfa
viða um lönd að heilbrigðismálum. í eftirfarandi grein
verður sagt nokkuð frá þeim viðfangsefnum, sem nú er
verið að glíma við.
BANVÆNIR SJOKDÓMAR FYRR OG NÚ.
Farsóttir og pestir, sem lögðu forfeður vora í gröfina,
eru á undanhaldi og banamein ern nú önnur. Nú segir
frá því, hvernig banvænir sjúkdómar taka stakkaskiptum
ár frá ári.
Merkasti áfangi síðustu 10 ára.
Hin geysilega lækkun dánarhlutfallstölunnar er merk-
asti árangur síðustu 10 ára, samkvæmt árbók sameinuðu
þjóðanna. Dánarhlutfallstalan er lægri á árabilinu 1950—
1954 heldur en árin 1915- 1949, þegar litið er á heildar-
tölu um jörðina alla og hefur lækkunin orðið hlutfallslega
mest í Afríku og Asíu síðara tímabilið.
Lækkunina má aðallega þakka auknu breinlæti og betra
heilbrigðiseftirliti, sem hefur í för með sér auknar likur
fyrir lengri lífdögum næstum hvarvetna.
Þar sem þróunin er lengst á veg komin má búast við,
38
Heilbrigt lif