Heilbrigt líf - 01.12.1958, Qupperneq 50
Þættir úr sögu læknisfræðinnar
Lýsandi ljós í myrkri.
Það er hvorki rétt né satt að segja, að í Evrópu hafi
engir visindamenn verið uppi á Miðöldum. Hins vegar
ern þeir svo fáir, að telja má, að andleg orka Evrópu-
manna hafi um stund verið drepin í dróma og lærdóms-
neistinn að fullu slokknað, ef Arahar hefðu eldvi haldið
honum lifandi.
Nútímamenn eiga liágt með að gera sér grein fyrir því
regin skeytingarleysi fyrir mannlegu lífi og þjáningum, er
rikti meðal Evrópuþjóða þeirra tíma. Megin þorri manna
var ofurseldur þrældómsoki lénsskipulagsins og borg
arastéttirnar, aðallega kaupmenn og iðnaðarmenn, tæplega
farnar að láta til sín taka. Hinar skæðu drepsóttir, sem
höfðu afar miklar þjóðfélagslegar afleiðingar, er þær
lögðu meir en helming vinnandi fólks í gröfina, komu ekki
upp fyrr en í lok þessa tímabils.
Á þessu tímabili, sem síður en svo liafði hina líknandi
list í hávegum, var í heiminn borinn sveinn, er hlaut í
skýrninni nafnið Lanfranehi, og síðar varð frægur fyrir
mannkosti og lærdóm. Fátt er vitað um ætterni hans
og æskuár, þótt talið sé, að hann hafi verið alinn upp i
Mílanó og kominn af gamalli ætt frá Písa.
Lanfranchi mun liafa hlotið beztu menntun, sem þá var
á boðstólum, sem sjá má á því hve framúrskarandi latínu
hann ritaði, en það var fátítt um klerka og því síður leik-
menn, að vera bænarbókarfærir hvað þá heldur meir. Þótt
48
Heilbrigt Uf