Heilbrigt líf - 01.12.1958, Side 65
fimm hundruð sílcla af lcanelvið eftir helgidómssíkli og
eina hín af olíuberjaolíu. Af þessu skal gjöra lieilaga
smurningsolíu, ilmsmyrsl."
Alitið var, að reykelsisilmur væri af guðlegri
rót runninn. Hinn óbreytti lýður mátti ekki njóta hans
og Móses refsaði þeim stranglega, sem brutu lög þessi.
Fyrstu menn, sem vitað er með vissu að notuðu ilmefni,
voru hinir voldugu Faróar, konungar Egypta. Þegar graf-
ið var í fornar hallarrústir fannst þar salur, sem hafði
hýst virðingarmann nokkurn með nafnbótina „höfuðs-
maður ilmefna“.
Kleopatra notaði ilmefni í óhófi.
Sagt er, að þegar Kleopatra sigldi yfir Miðjarðarliafið
á móts við Markus Antonius og skipið nálgaðist strendur
Italíu: „Þá kunngerðist lýðnum lcoma hennar mörgum
klukkustundum fyrr á hinum megna ilm, sem barst með
vindinum“.
Gríska goðafræðin kennir, að Venus liafi uppgötvað ilm-
efnin og gyðjan Alone, fylgdarmey hennar hafi ljóstað
upp við mennina leyndardómum þeirra.
Grikkir elskuðu blómailm, en Rómverjar vildu liafa
ilminn megnan og bruðl þeirra á ilmefnum var frægt.
Við útför Poppeu Sahinu notaði Neru meira af ilmefn-
um en hægt var að framleiða í allri Arabíu á heilu ári.
Þegar Sesar vann Galliu, rakst hann sér til furðu á ilm-
efna-bauka, en Gallar létu þá fylgja hinum dauða í
gröfina.
Hin ágæta ilmandi hirð í Frakklandi.
Einvaldar Frakklands höfðu allir miklar mætur á ilm-
efnum. Lúðvílc XIV var nefndur: „Hinn sætast ilmandi
einvaldskonugur, er nokkuru sinni hefði uppi verið“, og
á dögum Lúðvíks XIV. var hirðin í Versölum kölluð
„La Cour parfumée“. Þetta kostaði auðvitað offjár, og
til dæmis um það má nefna, að ilmefnareikningar Ma-
Heilbrigt líf
63