Úrval - 01.06.1944, Blaðsíða 33
AÐ LIFA HÁLFU LlFI
31
fætuma vera samsíða og lík-
amsþungann hvíla jafnt á þeim
báðum. Þetta er viðbragðsstell-
ing og þó eru taugar og vöðvar
í algerri hvíld, af því að beina-
grindin ber þá uppi líkamsþung-
ann eins og henni er eiginlegt.
Flest okkar hafa ekki aðeins
Ijótan limaburð, heldur einnig
Ijóta borðsiði. Það er allt of
algengur löstur að borða hratt.
Við gleypum í okkur matinn
eins og banhungruð rotta eða
eins og okkar biðu ríkuleg laun
að lokinni máltíð. En hver eru
svo launin? Léleg melting og
magasjúkdómar. Með því að
hafa dálítinn hemil á þessum
ótímabæra dugnaði okkar, gæt-
um við fækkað stórlega þess-
um óþægilegu kveisuköstum og
„klósettferðum", sem angra
okkur svo allt of oft. Natron
er næsta lélegt hjálpartæki til
að melta lítt- eða ótugginn
mat.
Við borðum líka of mikið,
einkum um hádegið. Við stokk-
fyllum magann af sykri og
kolvetnum — og undrumst svo
yfir því, að við skulum ekki
vera jafnfrá og frísk til vinnu
á eftir.
Þegar við íhugum hina óheil-
brigðu hfnaðarhætti borgarbú-
ans, sem stundar ekki erfiðis-
vinnu, sætir það undrun, hve
heilsa hans er þó góð. Hann er
23 tima sólarhringsins innan
húss, sól, regn og vindur snerta
sjaldan hörund hans. Hann
notar sjaldan meira en einn
tíunda af vöðvum líkamans.
Til þess að bæta fyrir léleg
vinnuafköst lungnana, lifrar-
innar, hörundsins og melt-
ingarfæranna, sankar hann í
sig hægðapillum og hverskon-
ar styrkjandi meðulum. Öllu
slíku gæti hann fleygt út um
gluggann, ef hann gerði sér að
reglu að vera eina klukkustund
úti á dag við léttar líkamlegar
æfingar eða störf.
Einn kunningi minn, miðaldra
lögfræðingur, gengur um ná-
grennið vopnaður garðklippum
og klippir tré og limagirðingar
fyrir nágrannana. Hann er ekki
sérvitringur, þetta er aðeins
hans aðferð til að afla sér
hohra hreyfinga og útiveru.
Mér, fyrir mitt leyti, er lítið
gefið um beygjur og sveigjur
og aðrar slíkar æfingar, sem
sumir leikfimiskennarar halda
mjög fram. Ég geng til og frá
vinnu á hverjum degi, hvemig
sem viðrar og geri dálitlar önd-
unar- og teygingaræfingar