Úrval - 01.06.1944, Síða 39
FYLGDARMEYJAR
37
ófreskjum. Þetta var almenn
smölun hins Ijótasta, sem til var
í París. Miðlararnir, sem voru
prúðir og smekkvísir, höfðu
erfitt hlutverk með höndum:
þeir hegðuðu sér eftir skapgerð
og aðstöðu fórnarlambsins —
djarflega, þegar stúlkan var í
peningahraki, en með varúð,
þegar hún var betur stæð efna-
lega. Það er erfitt fyrir kurteis-
an mann að fara til konu og
segja: „Frú, þér eruð ófríðar;
eg skal kaupa ófríðleika yðar
fyrir svo og svo mikið á dag“.
Sumir, sem tóku þátt í elt-
ingarleiknum, tárfella stundum
fyrir framan spegilinn, er þeir
minnast liðinna atvika. Stund-
um urðu miðlararnir reglulega
æstir: Þeir höfðu séð frámuna-
lega Ijótan kvenmann á göt-
inni og urðu fyrir hvern mun að
sýna Durandeau hana, til þess
að hljóta þakkir húsbóndans.
Sumir urðu að grípa til örþrifa-
ráða.
Á hverjum morgni athugaði
Durandeau varninginn frá deg-
inum áður. Hann sat fyrirmann-
legur í hægindastól, klæddur
gulum kufli, með svarta silki-
húfu á höfðinu, og lét leiða ný-
liðana fyrir sig. Miðlarinn, sem
komið hafði með stúlkuna,.
fylgdi henni jafnan. Durandeau
hallaði sér aftur á bak, deplaði
augunum og tók á sig gervi list-
skoðara, sem er ýmist ánægður
eða óánægður. Stundum varð
hann hugsi, og síðan Iét hann
stúlkurnar snúa sér í hring, til
að fá betri yfirsýn, og athug-
aði þær frá öllum hliðum.
Stundum reis hann á fætur,
snerti hár einhverrar stúlkunn-
ar og rannsakaði andlit hennar
líkt og skraddari athugar
klæðisbút, eða eins og krydd-
kaupmaður skoðar kerti eða
pipar. Þegar stúlkan var svo
ófríð, að ekki orkaði tvímælis,
þegar svipurinn var heimsku-
legur og sljór, neri Durandeau
saman höndunum ánægður;
hann óskaði miðlaranum til
hamingju; hann hefði jafnvel
getað faðmað ófreskjuna að sér.
En hann hafði illan bifur á
sérkennilega ófríðum stúlkum.
Þegar augun leiftruðu og biturt
bros lék um varirnar, varð
hann ygldur á svipinn og sagði
við sjálfan sig, að þótt svona
ófríð stúlka væri ekki sköpuð
fyrir ást, þá gæti hún vel verið
sköpuð fyrir ástríður. I slíkum
tilfellum var hann kuldalegur
við miðlarann og sagði stúlk-