Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Nýtt íþróttafélag, Vestri, var stofnað
á Ísafirði 16. janúar sl. en félagið varð
til með sameiningu fimm íþróttafélaga
á norðanverðum Vestfjörðum.
U
ndirbúningur að stofnun nýja félagsins hefur staðið í tæpt ár
en það eru Boltafélag Ísafjarðar, Sundfélagið Vestri á Ísafirði,
Blakfélagið Skellur á Ísafirði, Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar og
knattspyrnudeild Ungmennafélags Bolungarvíkur sem eru sett
undir einn hatt. Öll félögin hafa samþykkt sameiningu á félaga-
fundum og á stofndeginum, 16. janúar sl., var ný stjórn Vestra kosin.
Sameiningin mun þó ekki ganga í gegn að fullu fyrr en öll félögin
hafa samþykkt hana formlega á aðalfundum sínum.
Hjalti Karlsson var kjörinn fyrsti formaður félagsins. Auk hans
voru kosin í stjórn þau Gísli Jón Hjaltason, Sigurður Jón Hreinsson,
Guðfinna Hreiðarsdóttir, Guðni Guðnason, Sólrún Geirsdóttir og
Pétur Markan. Varastjórn skipa Jón Páll Hreinsson og Anna Lind
Ragnarsdóttir. Ljóst er að nýrrar stjórnar bíða mörg spennandi og
verðug verkefni.
VESTRInýtt íþróttafélag
á Vestfjörðum
Guðný Stefanía Stefánsdóttir formaður HSV flytur nýju félagi
kveðju og hamingjuóskir. Frá vinstri Magnús Erlingsson
fundarritari, Hjalti Karlsson formaður Vestra, Gísli Halldór
Halldórsson fundarstjóri og Guðný Stefanía.
Fulltrúar frá fjórum félaganna handsala sameininguna. Frá vinstri Ingi Björn Guðnason KFÍ, Sig-
urður Hreinsson Skelli, Gísli Jón Hjaltason BÍ88 og Páll Janus Þórðarson Sundfélaginu Vestra.
„Það felast möguleikar í þessari sameiningu sem eiga eftir
að koma enn betur í ljós í fyllingu tímans. Samtöl við fólk í
félögum sem hafa gengið í gegnum svona ferli hafa leitt í ljós
að það getur tekið allt að tíu ár að slípa alla hluti til. Þetta nær
vonandi tilgangi sínum, þó að það sé ekki til annars en að allir
geti fylkt sér undir merki eins félags og að allir geti gengið
í takt. Ýmis hagræðing fylgir þessu eins og í innkaupum á
búnaði, búningum og við horfum ennfremur til þess að geta
gert eitthvað sem lýtur að ferðakostnaði sem er gríðarlega
mikill hér,“ segir Hjalti Karlsson sem var formaður samein-
ingarnefndar og er nú formaður félagsins.
Ýmsir
möguleikar
felast í
sameiningunni