Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands K vennalið Snæfells í Stykkishólmi í körfu- knattleik varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið lagði Grinda- vík að velli í úrslitaleik í Laugardalshöllinni 13. febrúar sl. Þetta var í þriðja sinn sem Snæfell leikur til úrslita í þessari keppni. Stúlkurnar úr Hólminum voru með yfirhönd- ina allan leikinn en Grindavíkurliðið var samt aldrei langt undan. Snæfell leiddi í hálfleik, 41:34 en lokatölur urðu 78:70. Haiden Denise Palmer var með þrefalda þrennu og skoraði einnig 23 stig fyrir Snæfell. Gunnhildur Gunnarsdóttir var með einnig með 23 stig. Hjá Grindavík var Whitney Michelle Frazier atkvæðamest með 32 stig. SNÆFELL BIKARMEISTARI Í FYRSTA SINN A ðalfundur Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, var haldinn 25. febrúar sl. í félagsheimili Keflavíkur að Sunnu- braut 34. Einar Haraldsson var endurkjörinn formaður og stjórn félagsins er óbreytt. Auk Einars skipa stjórnina Kári Gunnlaugsson, varaformaður, Bjarney S. Sævarsdóttir, ritari, Þórður Magni Kjartansson, gjaldkeri, og Birgir Ingibergsson, meðstjórnandi. Í varastjórn eru Sveinn Adolfsson, Birgir Már Bragason og Guðjón Axelsson. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, sæmdi m.a. Einar Helga Aðalbjörnsson og Odd Sæmundsson starfs- merki UMFÍ. Sigríður Jónsdóttir, ritari ÍSÍ, veitti blakdeild Kefla- víkur fyrstu vottun sína sem fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ en einnig var endurnýjuð vottun badminton-, fimleika-, knattspyrnu-, körfuknattleiks-, skot, og sunddeilda. Eru þá allar deildir félags- ins með gæðavottun ÍSÍ. Í skýrslu formanns kom fram að rekstur félagsins á síðasta ári var góður og rekstrarniðurstaða jákvæð. Sagði hann að stjórnir deilda félagsins ættu mikið hrós skilið fyrir gott starf og góða stjórnun á fjármálum deilda. Starfsbikar félagsins fékk Ólafur S. Guðmundsson. Gullheiðurs- merki Keflavíkur var veitt Ragnari Erni Péturssyni og Ellerti Eiríkssyni. Starfsmerki Keflavíkur fyrir stjórnarsetu voru veitt á Einar Haraldsson endurkjörinn formaður Keflavíkur aðalfundum deilda. Gullmerki: Þorsteinn Magnússon, knattspyrna. Silfurmerki: Ásdís Júlíusdóttir, badminton, Halldóra B. Guð- mundsdóttir, fimleikar, Júlíus Friðriksson, sund/fimleikar, og Hjördís Baldursdóttir, knattspyrna. Bronsmerki: Guðný Magnús- dóttir og Hilmar Örn Jónasson, sund, Jónas Andrésson, skotfimi, Margeir E. Margeirs- son, karfa, Mikael Þ. Halldórsson, tae- kwondo, og Gunnlaugur Kárason, fimleikar. Einar Haraldsson, formaður, Skúli P. Skúlason, fundarstjóri, og Þórður Magni Kjartansson, gjaldkeri.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.