Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 39

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 39
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 39 Eitt kort 35 vötn 6.900 kr Frelsi til að veiða! 00000 www.veidikortid.is H éraðsþing Hrafna-Flóka var haldið í Félagsheimilinu Birkimel á Barða- strönd þann 15. mars sl. Mótaskrá sumarsins var samþykkt á þinginu auk þess sem starf komandi árs var rætt. Miklar umræður urðu um ástand íþróttamann- virkja á svæðum HHF en veðrið síðasta árið hefur valdið miklum skemmdum á þeim. Þingið bókaði áskorun til sveitar- félaganna um að fara í stefnumótun varð- andi uppbyggingu og viðhald íþróttavalla og mannvirkja á svæðinu og að ábyrgðar- aðilar séu skilgreindir. Á þinginu sæmdi Hrönn Jónsdóttir, stjórnarmaður UMFÍ, Kristrúnu Guðjóns- dóttur starfsmerki UMFÍ, fyrir mikið og óeigingjarnt starf í gegnum árin, fyrir bæði UMFT og HHF. Páll Vilhjálmsson íþróttafulltrúi fór yfir starfsemi íþróttaskólans sem er fyrir börn í 1.–4. bekk. Skólinn er haldinn á hverjum degi í samfellu við skólahald á Patreks- firði, Tálknafirði og Bíldudal og fá nem- endur skólans grunnþjálfun í mörgum mismunandi íþróttagreinum. Fyrirmynd íþróttaskólans kemur frá HSV þar sem þetta fyrirkomulag hefur reynst með ágætum og virðist henta vel fyrir minni og dreifðari sveitarfélög. Yfir 90% nemenda á þessum aldri eru skráð í íþróttaskólann og í fyrsta skipti hafa þau Börn hafa tækifæri til að stunda fjölbreyttar íþróttir tækifæri til að stunda fjölbreyttar íþróttir fimm daga vikunnar í skipulögðu starfi. Eitt af markmiðum skólans er að börn læri strax að hreyfing sé hluti af daglegu lífi. Veitt voru verðlaun íþróttamönnum ársins 2015, en þeir voru Einar Jónsson, knattspyrnu- maður ÍH, Kristján Kári Ágústsson, körfuknatt- leiksmaður ÍH, Saga Ólafsdóttir, frjálsíþrótta- kona ÍH, Andrea Björk Guðlaugsdóttir, sund- kona UMFT, og Þorbergur Guðmundsson, kraftlyftingamaður ÍH. Íþróttamaður HHF árið 2015 var kjörinn Þorbergur Guðmunds- son, kraftlyftingamaður úr Íþróttafélaginu Herði, en hann er landsliðsmaður í sinni grein og sá fimmti besti á landinu. Breytingar urðu á bæði stjórn og vara- stjórn HHF. Kristrún Guðjónsdóttir, sem var í varastjórn, tók sæti Sædísar Eiríks- dóttur sem setið hefur í stjórn frá 2010. Iða Marsibil Jónsdóttir kom inn í vara- stjórn í stað Kristrúnar. Nýja stjórn HHF skipa Lilja Sigurðardóttir, formaður, Birna Friðbjört Hannesdóttir, meðstjórnandi, og Kristrún Guðjónsdóttir, gjaldkeri. Í varastjórn sitja nú Heiðar Jóhannsson, Ólafur Byron Kristjánsson og Iða Marsibil Jónsdóttir. Hrönn Jónsdóttir, stjórn UMFÍ, afhenti Kristrúnu Guðjónsdóttur starfsmerki UMFÍ. Íþróttamenn ársins á héraðsþingi Hrafna-Flóka sem haldið var í félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd. A ðalfundur Ungmennafélags Kjalnes- inga var haldinn 3. mars sl. Á fund- inum var farið yfir helstu viðburði félagsins á árinu. Má m.a. nefna samstarf við Klébergsskóla um íþróttafjör sem er á skólatíma og hefur notið vinsælda. Sam- starf var einnig með sumarstarfið sem gekk með ágætum. Æfingar í frjálsum, fit- ness og boltaíþróttum verði fyrir iðkend- ur frá 1.–7. bekk. Formaður UMFK/Esju Íþróttafjör hefur notið vinsælda hjá UMFK kom og sagði frá góðum árangri liðsins og baráttu þeirra um aðstöðu í Skautahöll Reykja- víkur. Stjórn UMFK var kosin með smábreyting- um. Helstu breytingar voru að Guðrún Dögg Gunnardóttir lét af störfum sem meðstjórn- andi og tók Olga Ellen Þorsteinsdóttir við af henni og Guðrún Jónsdóttir tók sæti sem vara- maður. Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri UMFÍ, var gestur fundarins og sæmdi Davor Karls- son, Birnu Ragnarsdóttur og Írisi Fjólu Bjarnadóttir starfsmerkjum UMFÍ fyrir vel unnin störf fyrir félagið. Félagið hyggst styrkja nemendur á unglingastigi í Klébergsskóla til vistar í ungmennabúðum UMFÍ að Laugum á þessu ári ásamt því að standa að við- burðum á Kjalarnesdögum sem verða haldnir helgina 23.–26. júní í sumar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.