Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 43

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 43
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 43 Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Umhverfissjóði UMFÍ – Minningarsjóði Pálma Gíslasonar Tilgangur sjóðsins er að styrkja umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Stofnendur sjóðsins eru fjölskylda Pálma Gíslasonar,fyrrverandi formanns UMFÍ, ásamt ungmennafélagshreyfingunni og öðrum velunnurum. Reglugerð um sjóðinn ásamt rafrænni umsókn má finna inn á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is) undir styrkir. Umsóknum skal skila rafrænt til Ungmennafélags Íslands, fyrir 15. apríl 2016. N ítugasta og níunda ársþing Ung- mennasambands Austur-Húnvetn- inga var haldið á Húnavöllum 13. mars sl. Á þingið mættu 32 fulltrúar frá aðildarfélögum sambandsins en þau eru tíu talsins. Breyting varð á stjórn USAH á þinginu. Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður, Haf- dís Vilhjálmsdóttir, varaformaður, og Val- gerður Hilmarsdóttir, gjaldkeri, gáfu ekki kost á sér áfram. Guðrún Sigurjónsdóttir er áfram meðstjórnandi og Sigrún Líndal situr sitt annað ár sem ritari. Nýja stjórn USAH skipa þau Rúnar Pétursson, for- maður, Steinunn Hulda Magnúsdóttir, varaformaður, Guðrún Sigurjónsdóttir, með-stjórnandi, Sigrún Líndal, ritari, og Katrín Hallgrímsdóttir, gjaldkeri. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, ávarpaði þingið og þakkaði m.a. fyrir starf USAH og sveitarfélaganna við Landsmót 50+. Síðan sæmdi hann Hafdísi Vilhjálms- dóttur og Pétur Pétursson starfsmerki Rúnar Pétursson kjörinn formaður USAH UMFÍ og Aðalbjörgu Valdimarsdóttur gull- merki UMFÍ. Þórey Edda Elísdóttir, fulltrúi ÍSÍ, sæmdi Aðalbjörgu Valdimarsdóttur gullmerki ÍSÍ og Hafdísi Vilhjálmsdóttur og Valgerði Hilmars- dóttur silfurmerki ÍSÍ. Hvatningarverðlaun USAH, sem fyrrum formenn sambandsins gáfu á 100 ára afmæli þess og á að veita árlega, voru veitt í fjórða sinn. Bikarinn hlaut að þessu sinni Ung- mennafélagið Fram en félagið hefur stað- ið sig vel í barna- og unglingastarfi. Þess má geta að Fram fagnar 90 ára afmæli á þessu ári og í tilefni þess tóku fulltrúar félagsins við platta og blómum. Íþróttamaður USAH er Snjólaug María Jónsdóttir, úr Skotfélaginu Markviss. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, Hafdís Vilhjálms- dóttir og Pétur Pétursson. Aðalbjörg Valdimarsdóttir, fráfarandi for- maður USAH, afhenti Baldri Magnússyni formanni Fram hvatningarverðlaun USAH. Á rsþing HSÞ fór fram í Miðhvammi á Húsavík 13. mars. Alls mættu 59 fulltrúar frá 18 félögum á þingið sem var með hefðbundnu sniði. Fram kom að hagnaður hefði orðið á starfsemi HSÞ á árinu 2015. Gunnar Gunnarsson, stjórnarmaður UMFÍ, ávarpaði þingið og veitti Arngeiri Friðrikssyni starfsmerki UMFÍ. Jóhannes Friðrik Tómasson, bogfimi- maður úr UMF Eflingu í Reykjadal, var valinn íþróttamaður HSÞ á fyrir góðan árangur í bogfimi á liðnu ári. Hvatningar- verðlaun HSÞ voru afhent í fyrsta sinn á þessu ársþingi en þau eru ætluð sem hvatning fyrir unga íþróttamenn. Tveir íþróttamenn fengu verðlaunin núna, þau Hvatningarverðlaun HSÞ veitt í fyrsta sinn Stefán Bogi Aðalsteinsson, Umf. Eflingu, og Thelma Dögg Tómasdóttir, Hestamannafé- laginu Grana. Aníta Karin Guttesen var endurkjörin formaður HSÞ. Íþróttafólk HSÞ árið 2015.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.