Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 11
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 11
um gefa veikustu hlekkirnir í líkamanum sig.
Þetta er mestan hættan fyrir þá sem eru
góðir og framúrskarandi að grunnþjálfunin
sé sett til hliðar á kostnað ofuráherslu á
keppni- og skammtímasjónarmið.“
- Nú ert þú búinn að starfa lengi í þessu um-
hverfi. Finnst þér betur búið að þessum málum
í dag og er þekkingin betri?
„Já, tvímælalaust og þekkingin öll er miklu
betri. Við vitum alveg af þessari hættu og
vitum hvernig á að bregðast við. Það þarf að
vera meira samstarf á meðal þjálfara og þess-
ara efnilegu krakka. Þjálfararnir, sem þjálfa
sitthvorn flokkinn, þurfa að vera í samstarfi
og að ekki sé verið að keyra á sömu æfingun-
um í flokkunum fyrir þessa einstaklinga sem
eru að fara á milli. Við finnum þetta líka í frjáls-
um íþróttum þar sem við erum að fá krakka
úr boltagreinunum. Við sjáum þá meira um
líkamlegu hliðina á þjálfuninni og þá þarf
ekki að sinna því eins mikið í boltagreininni.
Ef svona samstarf er í gangi er engin hætta.
Þegar á allt er litið er þekkingin miklu meiri
og á þjálfunarþáttunum og áhrifum þeirra.
Sjúkraþjálfunin og öll aðstoð sem er í boði er
miklu betri en hún var.“
- Þú hlýtur að hafa staðið frammi fyrir því í
starfi þínu, þegar kemur að þeim tímapunkti
hjá unglingnum hvort hann eigi að halda
áfram eða ekki. Honum finnst hann fara á mis
við eitthvað í vinahópnum. Hvernig er tekið á
þessum málum?
„Við reynum að hafa félagsskapinn mjög
sterkan en það er eitt af aðalatriðunum í ungl-
ingaþjálfuninni. Þegar viðkomandi kemur á
æfingu áttu ekki bara að koma til að þjálfa
líkamann heldur ekki síður að njóta samver-
unnar við félagana sem er skemmtilegt að
hitta. Í einstaklingssportinu þýðir ekkert að
vera með einn góðan þá er eins víst að hann
hverfi á braut. Ef við erum aftur á móti með
nokkra saman, einn góður, þrír meðal og
tveir lélegir þá búum við til einhverja ein-
ingu sem virkar fyrir alla. Þetta er alveg lykil-
atriði í unglingaflokkunum. Ég segi alltaf að
það sé hlutverk þjálfaranna að vinna í þessu,
ekki bara á vellinum, líkamlega, tæknilega
og taktískt heldur líka þetta félagslega sem
er hluti af þjálfuninni. Þetta er sá þáttur sem
verður að vera í lagi.“
Þráinn Hafsteinsson
Þegar viðkomandi
kemur á æfingu áttu
ekki bara að koma til
að þjálfa líkamann
heldur ekki síður
að njóta samverunnar
við félagana sem er
skemmtilegt að hitta.