Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 35
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35 Hjörtur Ágústsson, verkefna- stjóri Evrópu unga fólksins: Vilji ungs fólks til þátttöku í ákvarðana- töku er mikill H jörtur Ágústsson, verkefnisstjóri Evrópu unga fólksins, segir að fjöldi þátttakenda í ráðstefnunni hefði verið vonum framar og frábært hversu mörg ungmenni úr ungmennaráðum voru áhuga- söm um að koma. „Það er greinilegt að það er mikil vitundar- vakning meðal sveitarfélaga og félagasam- taka þegar kemur að ungmennaráðum og vilji ungs fólks til þátttöku í ákvarðanatöku er mikill. Við hjá Evrópu unga fólksins erum mjög spennt fyrir næsta ári, en til stendur að skipuleggja ferðir til Evrópu, námskeið og ráð- stefnur til að styðja við þróun ungmenna- ráða á Íslandi. Það er greinilegt að raddir ungs fólks skipta máli,“ sagði Hjörtur. af því að vera í Ráðgjafarhópi umboðsmanns barna. Hjördís Eva Þórðardóttir fjallaði í erindi sínu um verkfærakistu sem þróuð hefur verið af umboðsmanni barna og UNICEF á Íslandi, með það að markmiði að gera sveitarfélög- um kleift að innleiða Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna í starfsemi sína. Barnvæn sveit- arfélög gera Barnasáttmálann að rauðum þræði í öllu starfi sínu og nýta reynslu og raddir barna með markvissum hætti til að bæta og aðlaga þá þjónustu sem þau veita börnum. Eygló Rúnarsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands, sagði frá því að ungmennaráð hefðu víða tekið til starfa á síðasta áratug eða svo. Á þeim tíma hefur starfsfólk á vettvangi félagasamtaka og sveitarfélaga leitað hóf- anna varðandi starfsaðferðir og nálgun og unga fólkið, sem starfað hefur í ungmenna- ráðunum, hefur reynt sig í nýjum og oft óskil- greindum hlutverkum. Erindið fjallaði um grundvallarspurningarnar: Hvað eru ung- mennaráð og hvernig ná þau bestum árangri? Evrópa unga fólksins er landsskrifstofa æskulýðshluta Erasmus+, mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlunar Evrópusambandsins. EUF styrkir margs konar samstarfsverkefni sem með einum eða öðrum hætti efla og styrkja ungt fólk með óformlegum námsaðferðum. Landsskrifstofan mun styrkja æskulýðsgeir- ann á Íslandi um rúmlega 238 miljónir króna árið 2016. Ásamt Evrópu unga fólksins stóðu Sam- band íslenskra sveitarfélaga, SAMFÉS, Ung- mennafélag Íslands, Félag fagfólks í frítíma- þjónustu og umboðsmaður barna að ráð- stefnunni.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.