Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 41

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 41
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 41 A ðalfundur Umf. Þróttar í Vogum var haldinn 25. febrúar sl. Í skýrslu stjórn- ar kom fram að barna- og unglinga- starf félagsins er fjölbreytt og rekið með blómlegum hætti. Mikill kraftur hefur verið í starfinu hjá Þrótti síðustu árin en félagið fór upp um deild á síðasta ári og einnig hafa yngri flokkar félagsins verið að eflast í knattspyrnu, sundi og júdó. Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri UMFÍ, var fulltrúi UMFÍ á fundinum og sæmdi Magnús Hauksson starfsmerki UMFÍ. Magnús stofnaði júdódeild hjá Þrótti 1997 og var þjálfari deildarinnar í 17 ár. Margir Íslandsmeistaratitlar hafa farið í gegnum júdódeild Þróttar og glæsilegir sigrar unnist. Magnús hefur unnið óeigingjarnt starf og verið fórnfús hugsjónamaður í störfum sínum fyrir Umf. Þrótt. Mikilvægt að börn og unglingar geti stundað íþróttir Gunnar Helgason var endurkjörinn for- maður. Ingimar Kristjánsson og Guðmundur Kristinn Sveinsson gáfu ekki kost á sér til end- urkjörs. Kristján Árnason var kosinn til tveggja ára í fyrra, Irma Þöll Þorsteinsdóttir, Baldvin Hróar Jónsson og Helga Ágústs- dóttir voru sjálfkjörin, rétt eins og Hannes Smárason og Rósa Sigurjónsdóttir í vara- stjórn. A ðalfundur Ungmennafélags Akur- eyrar var haldinn í Íþróttahöllinni á Akureyri 24. febrúar sl. Sigurður Magnússon, formaður UFA, fór yfir helstu þætti starfsins og nefndi meðal annars Unglingalandsmót sem haldið var á Akur- eyri með glæsibrag síðastliðið sumar. Viðurkenningar voru veittar fyrir Íslands- meistaratitla, Íslandsmet, stigahæsta karl og konu 18 ára og eldri og íþróttamann UFA 2015. Einnig voru veittar viðurkenn- ingar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Þeir sem heiðraðir voru að þessu sinni eru: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Ólafur Ó. Óskarsson, Ásgeir Már Hauksson, Guð- mundur Víðir Gunnlaugsson, Gísli Páls- son, Rannveig Oddsdóttir og Unnar Vilhjálmsson. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, ávarpaði fundinn og veitti Ásgeiri Má Haukssyni starfsmerki UMFÍ fyrir óeigin- gjarnt sjálfboðaliðsstarf í frjálsíþróttum. Viðburðaríkt ár að baki hjá Ungmennafélagi Akureyrar Sigurður Magnússon var endurkjörinn for- maður UFA. Úr stjórn gengu Birgitta Guðjóns- dóttir, Kolbrún Sveinsdóttir og Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir. UFA-stjórnin var búin að finna tvo nýja í stjórn, þá Finn Friðriksson og Gunnar Eyjólfsson. Síðasta sætinu var haldið opnu ef einhver áhugasamur vildi nú koma inn á aðalfundi en svo varð ekki þannig að þeir sem voru í stjórn og vildu halda áfram voru sjálfkjörnir. Einar Haraldsson formaður, Skúli P. Skúlason, fundarstjóri, og Þórður Magni Kjartansson gjaldkeri. Á rsþing Ungmennasambands Skaga- fjarðar fór fram á Sauðárkróki 13. mars sl. Í ræðu Sylvíu Magnúsdóttur, formanns UMSS, kom fram að starfsemi sambandsins hefði gengið vel á síðasta ári og bjartsýni ríkti fyrir starfinu. Fram undan væri þátttaka í Hreyfiviku UMFÍ sem gekk einstaklega vel á síðasta ári. Stefnt væri að því að fjölga enn frekar þátttakendum í vikunni sem fram fer í maí. Þá var ákveðið að halda formannafundi tvisvar á ári. Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, var með kynningu á næsta Lands- móti UMFÍ sem fyrirhugað er á Sauðár- króki 2018. Þá var kunngerð sameining þriggja hestamannafélaga í eitt og heitir hið nýja félag hestamannafélagið Skag- firðingur. Sylvía Magnúsdóttir var endurkjörin formaður UMSS. Úr stjórn gengu þau Steinunn Arnljótsdóttir og Guðmundur UMSS stefnir að góðri þátttöku í Hreyfiviku UMFÍ Þór Elíasson og í þeirra stað voru kosnar Þórunn Eyjólfsdóttir og Arnþrúður Heimisdóttir. Einar Haraldsson formaður, Skúli P. Skúlason, fundarstjóri, og Þórður Magni Kjartansson gjaldkeri. Aðalbjörg Haf- steinsdóttir og Ólafur Óskarsson. Unnar Vilhjálmsson. Helgi Gunnarsson frá UMFÍ og Magnús Hauksson, Þrótti. Frá ársþingi UMSS sem haldið var á Sauðár- króki 13. mars síðastliðinn. Frá aðalfundi Ungmennafélagsins Þróttar í Vogum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.