Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 33
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 33 12 María Rún Karlsdóttir, blakkona úr Þrótti, var valin íþróttamaður Fjarða- byggðar. María Rún var einnig kosin íþrótta- maður Þróttar. 13 Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, frjáls- íþróttakona úr Tindastóli, var valin íþróttamaður Ungmennasambands Skaga- fjarðar UMSS. Hún var einnig valin íþrótta- maður Umf. Tindastóls. 14 Taekwondokonan Ástrós Brynjars- dóttir og sundkappinn Kristófer Sig- urðsson voru útnefnd íþróttamenn Kefla- víkur. 15 Íþróttamaður Hattar var kjörinn körfuboltamaðurinn Benedikt Þ. Guðgeirsson Hjarðar. 16 Íþróttamaður ársins í Strandabyggð var kjörinn Rósmundur Númason en hann hefur stundað skíðagöngu og víða- vangshlaup í áraraðir með góðum árangri. 17 Körfuknattleiksfólkið Petrúnella Skúladóttir og Jón Axel Guðmunds- son voru kjörin íþróttamaður og íþróttakona Grindavíkur. 18 Knattspyrnumaðurinn Pétur Bjarna- son var útnefndur íþróttamaður árs- ins í Bolungarvík. 19 Akstursíþróttamaðurinn Gyða Dögg Heiðarsdóttir var valin íþróttamaður Ölfuss. Gyða var einnig valin mótorhjóla- og snjósleðakona Íslands árið af MSÍ. 20 Handboltakonan Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og taekwondomaður- inn Daníel Jens Pétursson, bæði úr Umf. Sel- foss, voru útnefnd íþróttafólk ársins í Sveitar- félaginu Árborg á uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar. 21 Ragnar Ágúst Nathanaelsson, körfu- knattleiksmaður, var útnefndur íþróttamaður Hveragerðis. 22 Æskulýðsnefnd Bláskógabyggðar útnefndi körfuknattleiksmanninn Sveinbjörn Jóhannesson, frá Heiðarbæ í Þingvallasveit, íþróttamann Bláskógabyggð- ar. 23 Kristín Þorsteinsdóttir, sundkona hjá Íþróttafélaginu Ívari, var útnefnd íþróttamaður Ísfjarðarbæjar. Var þetta jafn- framt þriðja árið í röð sem hún hlýtur þenn- an titil. 6 12 13 16 15 14 18 17 20 23 22 2119

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.