Skinfaxi - 01.01.2016, Qupperneq 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 1. tbl. 2016
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson,
jonkristjan@umfi.is.
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar
Örn Ragnarsson, Vignir Pálsson, Þorsteinn
Eyþórsson, Hanna Kristín Gunnarsdóttir, Gunnar
Geir Vigfússon, Örn Guðnason og Golfsambandið.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Birgir Örn
Sigurðsson, Jón Páll Hreinsson, Vigdís Diljá
Óskarsdóttir og Örn Guðnason.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi,
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Haukur Valtýsson, formaður,
Örn Guðnason, varaformaður,
Hrönn Jónsdóttir, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi,
Björn Grétar Baldursson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Þorgeir Örn Tryggvason,
Kristinn Óskar Grétuson,
Sigurður Óskar Jónsson og
Guðmundur Sigurbergsson.
Forsíðumynd:
Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir glæsilegri
ungmennaráðstefnu á Hótel Selfoss dagana
16.–18. mars sl. Var þetta jafnframt sjötta ráð-
stefnan sem haldin er undir merkjum Ungt
fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var:
Niður með grímuna – geðheilbrigði
ungmenna á Íslandi.
Á myndinni er hluti Ungmennaráðs UMFÍ
sem vann að undirbúningi ráðstefnunnar
undanfarna mánuði.
H
elga Guðrún Guðjónsdóttir,
fyrrverandi formaður Ung-
mennafélags Íslands, var á nýárs-
dag sæmd riddarakrossi fyrir störf á
vettvangi íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, sæmdi á þessum fyrsta degi
ársins ellefu Íslendinga heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu við hátíð-
lega athöfn á Bessastöðum.
UMFÍ óskar Helgu Guðrúnu og fjöl-
skyldu hennar innilega til hamingju.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir sæmd
heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu
Helga Guðrún ásamt Hálfdáni
Kristjánssyni, eiginmanni sínum.
Tólf Íslendingar voru sæmdir fálkaorðunni 1. janúar 2016.
G rasrótarverðlaun KSÍ árið 2016 hlaut
Ungmennafélagið Tindastóll á
Sauðárkróki. Félagið veitti viður-
kenningunni viðtöku á ársþingi KSÍ sem
fram fór í Reykjavík 13. febrúar sl.
Tindastóll hefur um áraraðir haldið úti
knattspyrnumóti fyrir bæði stráka og stelpur
með miklum sóma, Landsbankamóti Tinda-
stóls fyrir stúlkur í 6. og 7. flokki og Króks-
móti Tindastóls fyrir drengi í 5., 6. og 7. flokki.
Fram kom að KSÍ getur seint þakkað sem
vert er þeim félögum sem halda úti knatt-
spyrnumótum fyrir yngstu iðkendur knatt-
spyrnuhreyfingarinnar. Tindastóll er eitt af
frumkvöðlafélögum í þeim efnum og sumar-
ið 2016 verður 30. sumarið í röð sem Tinda-
stóll heldur úti móti.
Tindastóll hlaut grasrótarverðlaun KSÍ
Fulltrúar Tindastóls, Ingvi Hrannar
Ómarsson og Ómar Bragi Stefánsson,
ásamt Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ.
Ísafirði 10.–12. júní 2016