Skinfaxi - 01.01.2016, Qupperneq 19
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19
stórmerkilegur og sýndi það og sannaði að
ungt fólk er tilbúið í hvaða samfélagsumræðu
sem er. Slæm staða geðheilbrigðismála á
Íslandi var rædd svo og þau mál sem liggja
hvað mest á ungu fólki. Virðing og vinsemd
einkenndi samræður og þrátt fyrir að ung-
menni geti verið ósammála líkt og annað
fólk þá voru þau rökföst og tilbúin til þess að
læra hvert af öðru. Það er umræðuhefð sem
margir aðrir þjóðfélagshópar mættu taka sér
til fyrirmyndar.
Við fengum til liðs við okkur sálfræðing frá
kvíðamiðstöðinni, hana Steinunni Önnu
Sigurjónsdóttur, til þess að hjálpa okkur við
undirbúning málstofa auk þess sem hún flutti
Á
rsþing USÚ fór fram á Hótel Höfn
17. mars sl. Þingið var ágætlega
sótt, 30 fulltrúar af 41 mættu, frá
flestum félögum.
Gunnar Gunnarsson, stjórnarmaður í
UMFÍ, flutti ávarp og hvatti menn m.a. til
að sækja um styrki til Evrópu unga fólks-
ins. Hann sæmdi síðan Matthildi Ásmund-
ardóttur starfsmerki UMFÍ.
Á ársþingiu voru samþykktar breyting-
ar á lögum Styrktar- og afrekssjóðs USÚ.
Sveitarfélagið Hornafjörður mun leggja
ákveðið fjármagn í sjóðinn frá og með
næstu áramótum og því mun það fjár-
magn sem í boði er aukast umtalsvert frá
því sem hefur verið. Út af þessari breyt-
ingu þurfti að breyta lögum sjóðsins.
Einnig var samþykkt á þinginu reglugerð
um það hvernig velja eigi íþróttamann
USÚ ár hvert. Ferlið hefur ekki verið ákveð-
Kristján Örn Ebenezarson nýr formaður USÚ
ið undanfarin ár og því fannst stjórninni
rétt að setja upp leiðbeiningar um það
hvernig haga skuli valinu.
Páll Róbert Matthíasson, formaður USÚ,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í hans
stað var Kristján Örn Ebenezarson kjörinn
formaður. Auk Kristjáns voru Jóhanna Íris
Ingólfsdóttir og Sigurður Óskar Jónsson
kjörin í stjórnina.
Íþróttamaður USÚ árið 2015 var út-
nefnd Ingibjörg Valgeirsdóttir. Hún var
markmaður meistaraflokks Sindra í knatt-
spyrnu á síðasta ári. Hún var valin í U17-
landslið Íslands og spilaði hún 5 leiki þar.
Þegar því verkefni lauk fór hún beint í
U19-landsliðið og spilaði með þeim 3
leiki í haust.
Hvatningarverðlaun hlutu Bjarney
Jóna Unnsteinsdóttir, Birkir Freyr Elvars-
son og Gísli Þórarinn Hallsson.
Gunnar Gunnarsson, stjórnarmaður UMFÍ, ásamt Matthildi Ásmunds-
dóttur, sem var sæmd starfsmerki UMFÍ.
erindi sem fékk gríðargóðar viðtökur hjá þátt-
takendum ráðstefnunnar. Voru öll ungmenn-
in sammála um að stórbæta þyrfti fræðslu um
geðheilbrigði í skólum og samfélaginu öllu.
Í lokin sömdu þátttakendur sameiginlega
ályktun þar sem kallað var eftir úrbótum á
geðheilbrigðiskerfi sem byði upp á 718 barna
biðlista árið 2015, meiri þátttöku ungmenna í
lýðræðinu og mögulegri lækkun kosningaald-
urs í 16 ár. Sú ályktun var send til fjölmiðla og
stjórnmálamanna og það er von okkar að vilji
og raddir ungs fólks nái eyrum samfélagsins.
Ungmennaráð UMFÍ er gríðarlega stolt af
árangri ráðstefnunnar Ungs fólks og lýðræðis
en ekki síður af Ungmennafélaginu sjálfu fyr-
ir að styrkja ungmenni til þátttöku í lýðræð-
inu. Fyrir það ber að hrósa og við fögnum
metnaði UMFÍ fyrir hönd ungs fólks.
Fyrir hönd ungmennaráðs UMFÍ,
Aðalbjörn Jóhannsson, formaður