Skinfaxi - 01.01.2016, Page 20
20 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
G
ríðarleg fjölgun kylfinga á
Íslandi hefur vakið mikla
athygli og segja má með sanni
að hvert sem litið sé megi sjá
fólk leika golf. Golfið hefur
margt upp á að bjóða, hreyfingin er góð og
ekki síst er útiveran frábær. Við tókum spjall
við forseta Golfsambands Íslands, Hauk Örn
Birgisson, og spurðum hann út í íþróttina og
hvað ylli þessum gríðarlega áhuga á golfi.
„Áhuginn á golfi hér á landi er einstakur á
evrópskan og jafnvel á heimsmælikvarða. Á
Íslandi leika hlutfallslega miklu fleiri golf en
annars staðar í heiminum. Skráðir félagsmenn
í golfhreyfingunni eru um 17 þúsund en það
er síðan önnur eins tala sem leikur golf sem
við skilgreinum sem kylfinga. Þeir fara fimm
sinnum eða oftar á ári í golf. Þetta segir okkur
að yfir 10% þjóðarinnar leika golf og 5%
þeirra eru skráðir félagsmenn. Þetta eru tölur
langt um fram allt annað annars staðar í heim-
inum. Ég oft spurður að því af kollegum mín-
um í Evrópu hver sé ástæðan fyrir þessum
mikla golfáhuga á Íslandi. Við þessu er í raun
ekki eitt svar en á Íslandi er golf tiltölulega
G
O
LF
ódýrt. Allir leika golf óháð stétt eða stöðu
sem er kannski svolítið öðruvísi en annars
staðar í heiminum, þar sem efnaðra fólk
leikur fremur golf. Þetta er alls þannig ekki á
Íslandi. Allir golfvellir á Íslandi eru opnir öll-
um og allir geta leikið,“ sagði Haukur Örn.
Haukur segir að vinsældir golfíþróttarinn-
ar, burtséð frá því hvort við erum á Íslandi eða
annars staðar, tengist því að allir geta leikið
golf. Skiptir þar engu hvort um börn er að
ræða eða roskið fólk. Haukur segir að það
séu ekki margar íþróttir þar sem amman get-
ur farið í keppni við barnabarnið sitt undir
sömu reglum á sama golfvelli. Forgjafakerfið
gerir golfíþróttina svo einstaka.
– Hvað heldur þú að valdi þessum mikla
áhuga á íþróttinni hér á landi?
„Já, íslenskum kylfingum hefur fjölgað
mikið undanfarin 15 ár og er um tvöföldun
að ræða á þessum tíma. Ástæðurnar eru
eflaust margar. Ein þeirra er að ódýrt er að
leika golf á Íslandi. Við eigum mikið úrval
flottra golfvalla og hægt er að leika golf nán-
ast allan sólarhringinn yfir sumartímann. Það
að geta leikið 18 holu golfhring eftir að þú
hefur lokið vinnu er einstætt og það er ekki
hægt annars staðar í heiminum. Skilyrði til
golfiðkunar á Íslandi eru að mörgu leyti góð
og það á sér skýringar í þessum vinsældum,“
segir Haukur Örn.
– Hér hjálpar þá líklega líka að golfið sam-
einar fjölskylduna og að íþróttin er um leið holl
og góð hreyfing.
„Alveg rétt og hreyfingin er mikil. Ef fólk
leikur 18 holu golfhring gengur það 10–12
km vegalengd og einhverjir gera sér kannski
bara ekki grein fyrir því hversu mikil og góð
hreyfing þetta er. Golfvöllur er kannski um
6000 metra langur, þá labbar kylfingur aðra
eins vegalengd þegar hann er að leika og ég
tala nú ekki um þegar leita þarf að boltanum.
Svo er það alveg rétt að golfið er frábær fjöl-
skylduíþrótt.“
Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands:
Allir leika golf óháð stétt eða stöðu