Skinfaxi - 01.01.2016, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
H
éraðsþing HSK var haldið á Selfossi
13. mars sl. Góð mæting var á þing-
ið sem gekk vel og stóðst að mestu
tímaáætlun, en dagskrá þingsins var stytt
nokkuð að þessu sinni. Athygli vakti hve
mikið af ungu fólki sat þingið. Góðar um-
ræður voru í nefndum þingsins og rúm-
lega 20 tillögur voru samþykktar.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ,
ávarpaði þingið og veitti Baldri Gauta
Tryggvasyni, Umf. Baldri, og Stefáni Geirs-
syni, Umf. Samhygð, starfsmerki UMFÍ.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir og Þuríður
Ingvarsdóttir, Umf. Selfoss, voru sæmdar
silfurmerki HSK.
Breytingar urðu á stjórn sambandsins.
Örn Guðnason varaformaður og Helga Kol-
beinsdóttir gáfu ekki kost á sér til endur-
kjörs. Guðríður Aadnegard var endurkjör-
in formaður. Aðrir í stjórn eru Guðmundur
Jónasson, gjaldkeri, Anný Ingimarsdóttir,
ritari, Helgi S. Haraldsson, varaformaður,
og Rut Stefánsdóttir, meðstjórnandi. Í vara-
stjórn eru Gestur Einarsson, Baldur Gauti
Tryggvason og Olga Bjarnadóttir.
Íþróttafólk í þeim íþróttagreinum sem
stundaðar eru innan HSK var heiðrað og
úr þeirra hópi var Ragnar Ágúst Nathana-
elsson, körfuknattleiksmaður úr Þór í Þor-
lákshöfn, valinn íþróttamaður HSK 2015.
Guðmundur Kr. valinn öðlingur ársins 2015 hjá HSK
Örn Guðnason, varaformaður HSK, Guð-
mundur Kr. Jónsson, öðlingur HSK 2015,
og Guðríður Aadnegard, formaður HSK.
Frá vinstri: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ, Stefán Geirsson,
Baldur Gauti Tryggvason og Kristinn
Óskar Grétuson, varastjórn UMFÍ.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir, Þuríður
Ingvarsdóttir og Guðríður Aadnegard,
formaður HSK.
Íþróttafélagið Dímon var stigahæsta
félagið, Frjálsíþróttaráð HSK fékk ungl-
ingabikar HSK og fimleikadeild Umf. Sel-
foss hlaut foreldrastarfsbikar HSK. Þá var
Guðmundur Kr. Jónsson, Umf. Selfoss,
valinn öðlingur ársins.
Ragnar Ágúst Nathanaelsson, íþróttamaður HSK, ásamt íþróttafólki
HSK, fulltrúum þeirra, og formanni og varaformanni HSK.
S
ambandsþing Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar var haldið 12.
mars sl. í félagsheimilinu Fannahlíð í
Hvalfjarðarsveit þar sem Ungmenna- og
íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar var gest-
gjafar. Þingið var vel sótt og gekk vel und-
ir öflugri stjórn þingforsetanna Pálma
Ingólfssonar og Kristjáns Gíslasonar.
Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, flutti kveðju frá sínu
fólki og sæmdi Pálma Ingólfsson starfs-
merki UMFÍ fyrir störf sín fyrir ungmenna-
félagshreyfinguna í gegnum árin.
Þingið var nokkuð starfssamt og voru
m.a. samþykktar tillögur um ný framtíðar-
markmið UMSB, forvarnastefna, jafnréttis-
stefna, umhverfisstefna, siðareglur o.fl.
Ljóst var fyrir þingið að talsverðar
breytingar yrðu á stjórn sambandsins, en
sambandsstjóri, gjaldkeri, varasambands-
stjóri og varamenn þeirra gáfu ekki kost á
Ný framtíðarmarkmið samþykkt á sambandsþingi UMSB
sér til áframhaldandi stjórnarsetu og voru
þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf í
þágu sambandsins undanfarin ár. Upp-
stillingarnefnd var að störfum fyrir þingið
og kom með tillögur að nýju fólki í stjórn
sem samþykktar voru á þinginu og er
stjórnin nú þannig skipuð: Sambands-
stjóri er Sólrún Halla Bjarnadóttir, vara-
sambandsstjóri er Guðrún Þórðardóttir og
varavarasambandsstjóri er Haukur Þórðar-
son. Gjaldkeri er Elva Pétursdóttir og vara-
gjaldkeri er Sigríður Bjarnadóttir, ritari
er Þórkatla Þórarinsdóttir og vararitari er
Aðalsteinn Símonarson, meðstjórnandi er
Þórhildur María Kristinsdóttir og vara-
meðstjórnandi er Anna Dís Þórarinsdóttir.
Frá sambandsþingi UMSB sem haldið var í félagsheimilinu Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit.
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, sæmir Pálma Ingólfsson starfs-
merki UMFÍ.
Fulltrúar þeirra sem fengu úthlutað styrkjum úr afreksmannasjóði
UMSB.